Góðan og blessaðan.
Í vetur rann ég á kant með hægra afturhjólið eftir að hafa snúið bílnum í hálku (20-35 km/h). Eftir þetta fór bíllinn að rása óvenjulega mikið og þá var undirvagninn skoðaður. Í ljós kom að margar fóðringar voru komnar á tíma í afturhjólunum og því var skipt út. Bíllinn var eins og nýr í keyrslu eftir þetta og fór beint í hjólastillingu eftir það. Hjólastillingarmaðurinn gat ekki stillt hægra afturhjólið rétt (Hjólastillingar ehf). Hjólið varð eftir 12 mm skakkt. Hann sagði mér að prufa að skipta um hjóla-navið án þess að vera viss um að það væri málið. Hann gat ekki séð hvað var skakkt.
Eftir þetta fór ég á 2 önnur verkstæði og nokkrir menn lytu undir bílinn hjá mér og enginn gat séð hvað var skakkt.
Bíllinn sleit hvorki hægra afturhjóli né vinstra í langan tíma og fór ég að hugsa með mér hvort að eitthvað væri að yfir höfuð...
Svo kom það í ljós að síðan að það fór að hlýna er hann búinn að slíta VINSTRA afturhjólinu svona helvíti hressilega á innri kantinum.
Ef það er eitthver sem vill mynda sér skoðun á þessu þá voru það fóðringar 2 og 4 á þessari mynd sem var skipt um.
http://realoem.com/bmw/showparts.do?mod ... g=33&fg=30 Svo ég spyr. Er einhver hér sem hefur lent í einhverju svipuðu og þið viskubrunnar hvort þið séuð með einhverjar ráðleggingar um hvað ætti að skipta um.
Með fyrirfram þökk drengir!