Bíllinn sem vélin kom úr var með búnaði sem er forveri EWS. Búnaðir sem leyfir ekki að bílnum sé startað eftir að honum hefur verið læst.
Boð sem fara frá switch í hurð og inn í Motronic tölvuna. Þessi switch er ekki í bíl með EWS og því fær motronic'ið ekkert merki. Við það eitt að klippa á þennan vír þá kemst maður framhjá þessum búnaði.
Svo þurfti að tengja framhjá startaravírnum sem fer í gegnum EWS boxið.
Þetta kom allt í ljós með tímanum, netið, kraftsmenn (oskard) og svo endanlega kom Bjarki B&L mér á beinu brautina.
Það eina sem var að bílnum eins og hann var með hinni vélinni þ.e. vélinni frá Djöflinum var einn vír sem átti að klippa og tveir sem átti að jumpa saman.
Að því gefnu að hún hafi verið með odb-I non vanos rafkerfinu.
En bíllinn er kominn í lag núna og allt að gerast, skemmtileg vinnsla og þéttur í akstri.
En eftir að vélin fékk bensín og neista og fór að starta og ganga þá heyrðist versta hljóð sem ég hef heyrt frá vél. Eftir að hafa ráðfært mig við góða menn kom í ljós að vélin væri annaðhvort vitlaus á tíma eða undirlyftur alveg tómar af olíu. Tíminn var athugaður og var réttur. Þá var bara að setja 1l af sjálfskiptivökva á vélina og haldið í gangi. Eftir smá hjartslátt og svita á meðan vélinni var haldið í gangi á smá snúningu hættu þessu hljóð með öllu og ljúft 24v m50 hljóðið tók við. Semsagt tómar undirlyftur.
Þakka Einari Óla kærlega fyrir ráðin og hjálpina
