Jæja,
Í þessu updeiti eru bæði góðar og slæmar fréttir....
...en engar myndir fyrr en í kvöld
Góðu fréttirnar eru.....
Að ég er búinn að vera duglegur síðustu tvö kvöld.
Gírskiptibúnaður kominn í og virkar.
Það segir mér að ég pantaði rétt dót hjá Inga í B&L. Ég veðjaði á rétta skiptistöng, réttan skiptiarm og réttan gírkassabita
Rétt val er kallað "5 speed sport gearbox" í ETK
Ég hafði miklar áhyggjur að eitthvað eða allt yrði svo ekki rétt fyrir mitt setup.
Slæmu fréttirnar....
Gírkassinn er EKKI dogleg
Þegar gírskiptidótið var tengt og allt, þá prufaði ég skiptipatternið og það er eins og í venjulegum kassa.
Semsagt fyrsti gír er EKKI niður í þessum.
Kassinn er samt sem áður merktur með Getrag262 og dogleg númerinu.
Aftur á móti hef ég heyrt orðróm um að þeir hafi notað sama casing og non-dogleg Getrag262 og jafnvel sama og Getrag265.
Fæ sennilega engar nánari útskýringar á þessu en að minn sé þá "kannski" close ratio eða ekki.
Það verður bara að koma í ljós hvort ég er með Getrag262 eða Getrag265
En samt....ég er ánægður með að þetta er komið saman og virkar sem skildi.
Næstu kvöld klára ég að skipta um drifið, set 3,25 LSD í og mæli svo drifskaptið við það.
Þarf svo að láta stytta drifskaptið, fara með bílinn í púst og fínesera rafmagnið í húddinu.
Annað er búið
