Þetta rönn í gær var reyndar 1.2.3.4 rönn. 0-100 var 6.5sek og 100-200 7.2 sek. Frekar lélegt rönn og mikið wheelspin, seinar skiptingar. Ég er ekki mikill sprynukall og er ekki hrifin af svona rönnum. Dálítið brutal á kassa, kúplingu og annað dót.
Ég tók video af þessu sem ég var að reyna að græja í gær, en laptopinn minn réði ekki við þetta. Videocameran mín er JVC HD græja, og formatið sem hún skilar af sér er hundleiðinlegt. Ég þarf því að redda gömlu borðtölvunni minni í gagnið ef ég á að ná að gera eitthvað úr þessum videoum í sumar.
Það verður vonandi póstur fljótlega með:
1. 0-200 (1, 2, 3, 4 gír)
2. 100-200 í 4. gír
3. 1, 2, og 3. gír með cameruna í vegkantinum.
Varðandi 100-200 þá er ég eiginlega viss um að ég get tekið 8sek rönn ef ég nota bara 4. gír. því að pullið er ágætt og sparnaður í skiptingu.
Þessi frábæri tími sem er að sjást í dag á nýlegum bílum (E60M5, E92M3, 911Turbo, GT-R o.s.frv.) er greinilega tölvuert því að þakka að þarna eru Launch-control, spólvarnir, jafnvel 4x4 og svo dual clutch, sjálfskipt eða sequential. Það allt auðveldar góða 0-200 tíma svakalega.
Ég er allavega vel sáttur, veit að það eru mun öflugri bílar þarna úti, en þessi vinnsla er overall frábær í track usage.


