Fer svo á höfn síðustu helgi, þá fór hann að missa boost bara meðan ég var á steady 90 á cruise control. Ég nennti ekki að vera að stoppa þannig ég hélt bara áfram og hann lagaðist eftir nokkrar mínútur. Gerði þetta kannski 2-3 yfir þessa tvo daga. Svo er ég á leiðinni í bæinnn, stoppa rétt fyrir utan vík til að skoða mig um. Er svo að taka af stað aftur inná þjóðveginn, og þá kemur þetta flaut eða suð, frekar hátt eins og hann sé að blása framhjá, ég nefni þetta við félaga minn sem var með mér. Bara "vá, heyrirðu hvað hann er að blása framhjá". Hélt bara að þetta væri e-ð tengt þessum boost missi. En svo 2-3 sek seinna kemur þessi svaka hvellur og það snardrepst á bílnum. Og ég útí kant og tékka fyrst á tímareiminni, þar sem það dó á bílnum. Hún var í lagi þannig að ég fór að skoða mig um, einhver olía aftan við mótor þar sem túrbínan er, og mig grunar hana strax. Prufa að setja í gang, og bíllinn mökkreykir hvítu enda slatti af olíu sem er að spýtast útí pústið en gengur fínt annars. Færi hann svo inná næsta plan og í bæinn á kerru þetta kvöld.
Fer svo að rífa, og sé að compressorhúsið er bara clean búið að yfirgefa exhaust húsið. Compressor hjólið er í molum og róin hvergi sjáanleg. Það sem mér fannst skrítnast var að öxullinn virðist heill, gengjurnar á honum ósnertar og hann virðist við fyrstu skoðun vera beinn. Ég sprengdi allavega hosuna við túrbínuna, svo lekur hann olíu framanúr, sem er annaðhvort önnur hosa eða millikælirinn. Á eftir að rífa það í spað.
En mín spurning er, hvernig fór ég að þessu, hvað gerðist og er túrbínan ekki beyond repair? Er þetta boost tap ekki bara wastegate-ið að opnast og festast?
Og mælið þið með einhverjum sérstökum dealer úti? Þetta er Garrett GT2052V sýnist mér á plattanum á compressorhúsinu sem er búið að grafa eitthvað í, væntanlega týpu og partanúmer eða eitthvað.
Btw, bíllinn er í undirskrift og er að detta í 319þús km.
Albúm með myndum af þessu.


+