Ég og konan erum sannfærð að við sáum tvö geimför rétt norð-vestur frá
Reykjavík núna rétt áðan.
Tvö sérkennileg ljós komu í áttina til okkar, ekkert hljóð, og ferðuðust
á sérkennilegan máta, síðan hurfu þau upp í himinhvolfið.
Klukkan var um 22:15 þegar þetta gerðist.
Ég og konan erum svolítið orðlaus yfir þessu, ath. ekkert áfengi var með í för..
Við hringdum í 112 og gaurinn sem svaraði klóraði sér í hausnum, ætlaði
að gefa okkur samband við lögreglu en ég afþakkaði..
Er hægt að tjékka á flugturninum? veit einhver leið til að nálgast tracka eða eitthvað?







