bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 20:57

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 10 posts ] 
Author Message
PostPosted: Sun 24. May 2009 13:40 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Posts: 586
Location: Grafarvogur
Jæja, bíllinn minn er að fara í extreme makeover (E420 benz)
Heilsprautun og læti.

Planið er að ryðhreinsa, sparsla, grunna -> slípa, grunna slípa (í annað sinn) láta mála hann, og glæra margoft.

Vantar almennilegar upplýsingar ef einhver lumar á bók eða álíka, því ég ætla að ná bílnum eins og spegli, vil ekki sjá mjög hamrað lakk.

_________________
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 14:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Posts: 1834
Location: Rkv
kannski tékka þá á einhverju sambærilegu þessu? http://www.sprautun.is

bara hugmynd...

_________________
E39M5
A35AMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 14:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Jarðsprengja wrote:
kannski tékka þá á einhverju sambærilegu þessu? http://www.sprautun.is

bara hugmynd...


Heyrist hann ætla að reyna gera sem mest sjálfur.....

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 14:10 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
vertu bara í samráði við málara með þetta, og þá helst þann sem ætlar að mála bílinn.

Ef þú ert ekki búinn að ákveða hver málar bílinn þá skaltu athuga það að margir málarar vilja ekki mála bíla sem fólk útí bæ hefur unnið undir málningu

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 14:25 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Posts: 586
Location: Grafarvogur
Lindemann wrote:
vertu bara í samráði við málara með þetta, og þá helst þann sem ætlar að mála bílinn.

Ef þú ert ekki búinn að ákveða hver málar bílinn þá skaltu athuga það að margir málarar vilja ekki mála bíla sem fólk útí bæ hefur unnið undir málningu



Bíllinn verður unninn af atvinnumálara, kemst að því seinna hver það er, hann er kominn á tjónaverkstæði þar sem ég ætti svo að geta unnið í honum með smá leiðsögn.

Ég á eftir að ræða við sprautarann hvernig þetta verður unnið, ég ætla mér ekki að mála neitt sjálfur heldur bara slípa og svona sem krefst ekki æfingar eins og sprautunin.
Langaði bara að finna almennilegt info um sprautun og eiginleika grunns og svo framvegis til að standa betur að vígi.
Svo fer ég bara að byrja að rífa bílinn í spað vonandi í næstu viku, efast um að ég muni nenna samt að taka mótorinn úr og vinna við skelina í heild sinni.

_________________
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 22:17 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Fá bílamálara til að horfa á bílinn með þér og pæla þetta með þér, hvernig er best að gera hitt og gera þetta, langbesta leiðin.

Eitt smá tip varðandi ryðskemmdir, ef það er komið nálargat í gegnum stálið þá er stálið á stóru svæði í kring bara örþunnt og alveg að ryðga í gegn. Þannig að ef þú þarft að skera úr þá þarf að skera töluvert stærra svæði en gatið er.

Hin leiðin er að hreinsa með sandpappírskífu á bakvið og setja trebba og spasla í gatið. Best samt að sandblása ryðið burt með svona hobby sprautu.

Varðandi slípunina, ekki freistast til að nota of grófan pappír á spaslið, það sést ALLT þegar grunnurinn er kominn á :þ 200-240 hámark.

Ef þú þarft að spasla þykkt á hreint stál, grunnaðu með epoxy grunni undir það.

Held ég hætti nú, ætti nú að geta svarað þér ef þú hefur eh fleiri spurningar, erum að leggja lokahönd á eitt stykki Hilux makeover :þ


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 22:46 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Posts: 586
Location: Grafarvogur
JonHrafn wrote:

Varðandi slípunina, ekki freistast til að nota of grófan pappír á spaslið, það sést ALLT þegar grunnurinn er kominn á :þ 200-240 hámark.



Já satt, mér finnst það nú algjör stórslys að sjá sandpappírsförin í grunninum.
Giska á að ég vatnsslípi grunninn P2000+ ?
Það var allavegana gert síðast og kom vel út, af atvinnumálara.

_________________
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 22:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
Hlynzi wrote:
JonHrafn wrote:

Varðandi slípunina, ekki freistast til að nota of grófan pappír á spaslið, það sést ALLT þegar grunnurinn er kominn á :þ 200-240 hámark.



Já satt, mér finnst það nú algjör stórslys að sjá sandpappírsförin í grunninum.
Giska á að ég vatnsslípi grunninn P2000+ ?
Það var allavegana gert síðast og kom vel út, af atvinnumálara.

Held að þið ættuð báðir að skreppa og hitta atvinnumálara :lol:

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 24. May 2009 23:31 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Posts: 586
Location: Grafarvogur
///MR HUNG wrote:
Hlynzi wrote:
JonHrafn wrote:

Varðandi slípunina, ekki freistast til að nota of grófan pappír á spaslið, það sést ALLT þegar grunnurinn er kominn á :þ 200-240 hámark.



Já satt, mér finnst það nú algjör stórslys að sjá sandpappírsförin í grunninum.
Giska á að ég vatnsslípi grunninn P2000+ ?
Það var allavegana gert síðast og kom vel út, af atvinnumálara.

Held að þið ættuð báðir að skreppa og hitta atvinnumálara :lol:



Eina reynsla mín af atvinnumálurum er sú að þeir hafa algjört æði fyrir að sparsla, ALLT gjörsamlega allt, fara hamförum í nýbyggingum, óþolandi ...

En undirvinnan verður gerð eins og áður kom fram í fullu samráði við atvinnusprautara eða af atvinnusprautara.
Kannski að þú viljir halda hér smá lektúr um þetta.

_________________
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 25. May 2009 00:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
Það er fínt að slípa sparsl með t.d 120 pappír (ekki grófari) og fara svo vel yfir með t.d 240-280 og þá ertu save að það sökkvi ekki seinna meir.

Með vatnsslípun á grunn þá notarðu 800-1200 pappír.

2000 vatnspappirinn er til að fjarlægja ryk og fínesera glæruna í lokin með mössun.

Og svo er alger óþarfi að glæra nokkrum sinnum eins og þú talar um enda snarhættir þú við það þegar þú sérð efniskostnaðinn í dag :lol:

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 10 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 26 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group