Þetta er nú fullmikið sagt og er frekar hæpin rök fyrir þessum skatti :
Þá segir að ætla megi að hluti óskoðaðra ökutækja í umferðinni sé í lélegu ástandi og geti skapað hættu.
Auðvitað er alveg í lagi að það séu einhver ákvæði og sektir við trassa skap en fyrr má nú rota en dauðrota.
Ástæða þess mjög oft að fólk fer ekki með bíla í skoðun á réttum tíma er oft sú að fólk á bara ekki fyrir skattinum og skoðunargjaldinu.
Þetta mun fjölga númerslausum bílum útum allann bæ sem verða svo hirtir af Vöku með tilheyrandi leiðindum og kostnaði.
Þetta er að verða algjörlega vitfyrt fávita eyja þar sem mest menntaða og jafnframt heimskasta fólkið stjórnar okkur hinum,því að menntun og gáfur fara ekki endilega saman .
http://visir.is/article/20080416/FRETTI ... 4841563656




