bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 21:44

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 30. Apr 2007 15:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Einhver hér sem stundar þetta sem hobbý eða að atvinnu?

Finnst þetta virkilega spennandi og er eitthvað að kynna mér þetta. Var að vona að einhver gæti mælt með góðum hagstæðum "banka" sem er ekki með mjög hátt "minumum".

Ef aðrir eru forvitnir og vilja lesa þá má finna uppl. hér

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 30. Apr 2007 17:59 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Hef bara verið að leika mér með demo account. Þetta er ansi skemmtilegt, það sem gerir þetta svona spennandi er hvað það þetta er fljótandi markaður, áður en þú veist af er gróði kominn í tap eða öfugt. Fljótt að gerast.

Er með minn demo account hjá http://www.oanda.com.
Hef einnig prófað að vera með demo account hjá http://www.fxcm.com. Gallinn við hann er að hann endist bara í 30 daga.

Hef lengi verið að spá í að prófa þetta með alvöru pening en ekki enn látið verða úr því. Maður fer kannski að drífa í því.
En það er allavega ekkert vit í að fara í þetta með alvöru pening án þess að hafa prófað demo account í einhvern tíma.

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 30. Apr 2007 22:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Zyklus wrote:

Ég hef einmitt verið með demo account hjá FXCM.com það var mjög fróðlegt. Ég er einnig að fara í framhaldsnám sem kemur inn á þetta að einhverju leiti. Er svo að velja mér bækur á netinu núna til að lesa mig til.

Hef ekki enn prófað með pening en það fer að líða að því. Vill reyna að lágmarka áhættu samt svo það borgar sig að lesa sig vel til fyrst.
Endilega láttu mig vita hvernig gengur hjá þegar þú ákveður að prófa :wink:

Skólafélagi minn gerði þetta á meðan hann var í námi með mjög góðum árangri en það má taka fram að hann las sig til og gerði þetta virkilega fagmannlega.

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 01. May 2007 00:43 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Hérna er fín síða fyrir byrjendur. Fer í gegnum öll grunn atriðin.

Annars er þetta mjög mikið bara sálfræði. T.d. eru algeng mistök hjá mörgum að þegar þeir eru komnir í tap að þá losa þeir sig við stöðurnar alltof seint í stað þess að sætta sig við tapið og lágmarka það.

Hvað ertu annars að læra?

Annars varðandi það að setja alvöru pening í þetta, er ekki orðið eitthvað vesen fyrir erlenda ríkisborgara að stofna reikninga í BNA (út af öllu þessu terrorista dæmi)?
T.d. á Oanda þá þarf maður held ég að stofna reikning í BNA og svo þarf að senda ljósrit af skilríkjum.
Var ekkert vesen fyrir skólafélaga þinn að setja pening í þetta?

_________________
BMW E34 525iA '95

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 01. May 2007 14:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Posts: 3886
Location: Bíldudalur
Zyklus wrote:

Hvað ertu annars að læra?

Annars varðandi það að setja alvöru pening í þetta, er ekki orðið eitthvað vesen fyrir erlenda ríkisborgara að stofna reikninga í BNA (út af öllu þessu terrorista dæmi)?
T.d. á Oanda þá þarf maður held ég að stofna reikning í BNA og svo þarf að senda ljósrit af skilríkjum.
Var ekkert vesen fyrir skólafélaga þinn að setja pening í þetta?

Ég er menntaður viðskiptafræðingur og er að fara í framhaldsnám í haust í hagfræði eða alþjóðaviðskiptum. Er enn með báða möguleika opna.

Annars virtist ekki vera mikið mál fyrir þennan skóla félaga minn að setja pening í þetta. Ég reyndar þekkti hann ekkert sérlega vel og veit ekki hvaða síðu hann notaði.
Svo sýnist mér t.d. FXCM bjóða upp á Paypal þannig að þetta ætti ekkert að vera neitt svaka mál. Flyt svo til Skotlands í sumar og þar gæti ég hugsanlega kíkt á þetta með skoskum reikning.
Þekki þetta með sálfræðina. Ég er með mjög lítið "spilafíknargen" í mér og á held ég ágætlega auðvelt með að hætta áður en stefnir í óefni.

Takk fyrir linkinn. Ég kíki á þetta :)

_________________
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group