Ég er bara á því að það sé ekki hægt að bera rallýcross brautina saman við alvöru keppnisbraut.
Ekkert ílla meina á þig Alpina, (Man því miður ekki hvað þú heitir).
Rallýcross brautin er góð og gild og allt það, og mjög flott þetta átak undanfarið ár að vera með þessa opnu leikdaga.
En málið er að þetta er bara leikur á rallýcross brautinni, fólk er bara að leika sér að slide-a og drift-a. Þetta er allt annar akstur en á kappaksturbraut.
Það er dálítill þjösnagangur á bílunum á rallýcross brautinni.
Það þarf ekkert að vera þjösnast á kappaksturbraut þótt maður keyri hratt á henni.
Allavega mun minni þjösnagangur.
Það er líka tímataka í gangi á kappaksturbraut, þú getur reynt að bæta þig eða séð hversu betri eða verri þú ert en félagi þinn t.d.
Það sem ég er að reyna segja hérna er að ég virkilega held að það sé fólk þarna úti sem ekki beint hefur áhuga á að fara með núverandi ökutæki sitt á rallýcross brautina, bæði vegna þess að það vill ekki vera þjösnast á ökutækinu sínu. Og fólk vill heldur ekki vera koma á t.d. fwd Opel Corsa Swing 1.4 og bara keyra brautina, það er bæði leiðinlegt fyrir þann sem myndi gera það og einnig fyrir þá sem horfa á.
Og líka vegna þess að það er ekki til í að fara leggja til peninga í leiktæki bara til að vera á opnum dögum á rallýcross brautinni.
Hinsvegar ef það er kappaksturbraut þá getur þú komið á hvernig bíl sem er í rauninni. Einnig held ég að það sé fullt af fólki þarna úti sem er til í að koma sér upp leiktæki/keppnisgræju um leið og alvöru braut væri komin upp.
Getur velverið að þið séuð ósammála mér en þetta er það sem ég hef á tilfinningunni.
T.d. bara með mig, ég tími ekki að fara með núverandi bíl minn E34 535iA á rallýcross brautina, en hinsvegar færi ég strax á kappaksturbraut að leika mér aðeins þar, þótt ég myndi ekki taka 100% á bílnum þar.
Svo á t.d. félagi minn einn gamlann bíl sem hann notar dagsdaglegar og ég bara bíð eftir því að geta keypt hann af honum og breytt í leiktæki, en út í það ætla ég ekki að fara bara fyrir rallýcrossbrautina.
Hinsvegar ef ég væri kominn með þetta leiktæki þá færi ég sennilega á rallýcross brautina með það líka.
Vona að ég hafi náð að koma með eitthvað point hérna.
P.s. TLDR
...NOT