Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bimmer » Wed 08. Oct 2008 16:17

///M wrote:Það verður ekkert ódýrt á íslandi.. við flytjum allt inn og það á allt eftir að hækka í samanburði við gegnið.


Hvernig er það - á að flytja þig inn aftur?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby ///M » Wed 08. Oct 2008 16:29

bimmer wrote:
///M wrote:Það verður ekkert ódýrt á íslandi.. við flytjum allt inn og það á allt eftir að hækka í samanburði við gegnið.


Hvernig er það - á að flytja þig inn aftur?


Nei... allavega ekki svo ég viti :lol:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby Thrullerinn » Wed 08. Oct 2008 16:31

Mér finnst merkilegt hvað forsætisráðherra og viðskiptaráðherra koma
sínu fram á skýran hátt. Menn með sterk bein, vægast sagt.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bjornvil » Wed 08. Oct 2008 16:46

Thrullerinn wrote:Mér finnst merkilegt hvað forsætisráðherra og viðskiptaráðherra koma
sínu fram á skýran hátt. Menn með sterk bein, vægast sagt.


Já, nokkuð gott hjá þeim. Væri ekki til í að vera í þeirra sporum þessa dagana.
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby ValliFudd » Wed 08. Oct 2008 16:57

Viðskiptaráðherra (sem ég hafði aldrei séð áður eða heyrt um fyrr en í þessarri viku) er ekkert smá öruggur með sig og kemur vel fram.

Virðist vera svona gaur sem tekur ekki við neinu kjaftæði. Ánægður með hann.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby HPH » Wed 08. Oct 2008 16:59

Nú er langar mig aðeins að vita.
Ég lét plata mig í Allianz Viðbótarlífeyrissparnað.
Allt sem ég hef lagt í þetta er þetta orðið verðlaust? á ég að seigja við launafulltrúan í vinnuni að hætta láta mig borga í þetta eða hvað á ég að gera?
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Djofullinn » Wed 08. Oct 2008 17:07

HPH wrote:Nú er langar mig aðeins að vita.
Ég lét plata mig í Allianz Viðbótarlífeyrissparnað.
Allt sem ég hef lagt í þetta er þetta orðið verðlaust? á ég að seigja við launafulltrúan í vinnuni að hætta láta mig borga í þetta eða hvað á ég að gera?
Uuuu er það ekki frekar búið að rjúka upp í verði þar sem það er í evrum??
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Jón Ragnar » Wed 08. Oct 2008 17:49

Djofullinn wrote:
HPH wrote:Nú er langar mig aðeins að vita.
Ég lét plata mig í Allianz Viðbótarlífeyrissparnað.
Allt sem ég hef lagt í þetta er þetta orðið verðlaust? á ég að seigja við launafulltrúan í vinnuni að hætta láta mig borga í þetta eða hvað á ég að gera?
Uuuu er það ekki frekar búið að rjúka upp í verði þar sem það er í evrum??


Hahah hefði haldið það :lol:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby gunnar » Wed 08. Oct 2008 18:13

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/1 ... ingasjoda/

Hvað vilja menn lesa í þessi orð ?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Jónas » Wed 08. Oct 2008 19:33

Ætla rétt að vona að peningabréf verði ekki bætt!

Fólk er að taka áhættu (þótt að hún eigi að vera lágmarks) og á að þurfa að taka á sig tapið alveg eins og að það innleysir hagnað!
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby MR.BOOM » Wed 08. Oct 2008 22:00

Bara veit ekki. :shock:


Tekið af http://www.eyjan.is/silfuregils/


Quote:
Ég held að allir séu sammála um að þurfi að standa vörð um almenning í landinu, ofurskuldsett fyrirtæki munu líklega falla, það verður atvinnuleysi, en svo mun byggjast upp nýtt atvinnulíf.

Það er mikið talað um innistæður fólks í bönkum. Okkur er sagt að sparifé sé tryggt. Maður vonar að það sé rétt. Öðru máli gegnir um peningasjóðina. Þeir eru að reynast hin mesta svikamylla. Margt fólk hefur haft samband við mig sem óttast að tapa öllu inni í þessum sjóðum.

Bankarnir hringdu kerfisbundið í sparifjáreigendur og hvöttu þá til að færa fé sitt af hefðbundnum bankabókum og yfir í þessa sjóði. Þeim var sagt að þetta væri hundrað prósent öruggt. Alveg þangað til í síðustu viku var því sagt að þetta væri öruggt.

Það er ljóst að sjóðirnir voru notaðir í öðrum tilgangi en lagt var upp með; í Glitni voru þeir notaðir til að kaupa skuldabréf af fyrirtækjum eigenda bankans.

Þetta er í stuttu máli einhver ógeðfelldasta svikamylla sem hefur sést á Íslandi. Maður vonar að þeir sem bera ábyrgð á þessu verði dregnir fyrir dóm og sakfelldir.

Í gær barst mér svohljóðandi bréf frá konu sem ég ætla ekki að nafngreina – þetta sýnir hvílíkan harm þessi svik eru að skapa.

--- --- ---

Sæll Egill.

Þú ert þjóðarsálin okkar, og því langar mig að segja þér martröð föður míns.

Hann er 77 ára hokinn og illa farinn líkamlega af erfisvinnu allan sinn aldur, aldrei tekið sér sumarfrí – sparað – allt skorið við nögl. Sannur fulltrúi sinnar kynslóðar. Hann átti íbúð í Reykjavík ásamt húsi úti á landi. Hann seldi allar eigur sínar á sl. 2-3 árum og hefur borgað á sjöttu milljón í söluhagnað og aðra skatta.

Hann keypti sig inní Búseta og borgar þar um 150.000.- í leigu á mánuði.

Aleiga hans er í peningabréfum í L.Í. sem ráðgjafar hans í bankanum sögðu það albesta fyrir hann. Engin áhætta, enda alla tíð forðast áhættu.

Ævistarfið 36.000.000.- er fast þar. Fyrir viku hafði hann samband við útibúið sitt til að kanna hvort hann væri ekki í góðum máum og með allt tryggt, ef illa færi. Hann var fullvissaður af þjónustustjóra að svo væri.

Gæti ekki verið betra.

Nú er það svo að aldrað fólk vill halda fjárhagslegu sjálfstæði sínu, án afskipta ættingja - og treystir á leiðsögn síns banka þar sem æviviðskiptin hafa farið fram.

Það er sorglegra en tárum taki að vera með gamla vinnulúna manninn í fanginu – grátandi – .

Búið að ræna hann sjálfsvirðingunni - ærunni - hans aleiga farin. Hann á ekki húsnæði – ekki fyrir næsta húsaleigureikningi – ekki bensíni - og þar með frelsinu, því hans vinnulúnu fætur bera hann ekki í búðina.

Hann var svikinn af sínum banka. Við getum ekki leyft okkur að taka sjálfsviðinguna að elstu þegnum þessa lands og skilið það eftir á götunni – eftir rán uppá heilar 36.000.000.- af bankanum sem sannfærði hann um að hann væri ekki með neitt áhættufé – heldur bankareikning sem héti peningabréf. ´

p.s. ég hef sent Jóhönnu Sig. þessa sögu, og auðvitað vonast ég eftir svari og ákalli um viðtal. Þetta er neyðarkall. Hvað getur maður gert?
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.

Image
User avatar
MR.BOOM
Getawaybílstjóri
 
Posts: 980
Joined: Sat 22. Feb 2003 15:22
Location: Reykjavík

Postby HAMAR » Wed 08. Oct 2008 23:07

Þetta er svakalegt að lesa,
það versta við þetta er að það verður örugglega enginn dreginn til ábyrgðar
frekar en vanalega hér á landi :(
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Postby Eggert » Wed 08. Oct 2008 23:54

Þetta er alveg hrikalegt :x


Sérstaklega ef um ásetning er að ræða, þ.e.a.s. að hafa notað þennann pening í hin dótturfyrirtækin og svo Glitni steypt á kollinn.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Zyklus » Thu 09. Oct 2008 01:29

Þá er Kaupþing komið undir ríkið.

Þetta eru einfaldlega efnahagslegar hamfarir sem við erum að upplifa.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby gunnar » Thu 09. Oct 2008 08:00

](*,) ](*,) ](*,) ](*,) ](*,)


Hvað getur maður annað sagt en bara "Takk Dabbi..." :roll:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 41 guests