Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby gunnar » Tue 07. Oct 2008 20:14

Set þetta inn bara ef menn misstu af þessu :lol:



Már Másson hjá Glitni í fréttaviðtali við norskan blaðamann
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Elnino » Tue 07. Oct 2008 20:27

Djöfull var Dabbi góður í kastljósinu. Þvílikt flottur á því 8)
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR
User avatar
Elnino
Getawaybílstjóri
 
Posts: 798
Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Location: Þorlákshöfn City!

Postby Einarsss » Tue 07. Oct 2008 21:19

já hann var með allt á hreinu ... ef þetta er allt satt sem hann sagði þá er dabbi kúl á því... lýst vel á að láta ekki almenning í landinu taka skuldina á sig fyrir þessa gæja sem "áttu" ísland á láni.

Spurning hvernig fer með icesave samt ... lítur út fyrir að bretar verði ekki sáttir með orð davíðs í kvöld
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby gstuning » Tue 07. Oct 2008 21:32

Málið er að menn voru að nota markaðina til að meika peninga, þegar var svo ekki hægt að greiða skammtíma skuldir þá fellur þetta bara og hefur verið að gerast í bandaríkjunum.

Leiðinlegt að segja það , enn margir verða gjaldþrota, enn overall samkvæmt dabba þá er það ekki almenningur sem verður að þroti kominn,
þeir sem spiluðu þeir munu tapa.

enn hann virtist BARA vera með svörin við hverju sem er.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby pallorri » Tue 07. Oct 2008 21:49

Image

:santa: :?:
:king: :?:
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby Bjarkih » Tue 07. Oct 2008 21:57

Aron Andrew wrote:
gstuning wrote:
Aron Andrew wrote:Er búið að loka á íslensk kreditkort erlendis?

Er búinn að prufa fullt af kortum með nægum heimildum en það kemur alltaf að þeim sé hafnað...

Hvað er málið?


hvað ertu að reyna taka mikið út?
erlend úttektar heimild per dag er auðvitað búin að breytast feitt útaf genginu hjá VISA/MC


Er það samt ekki alltaf miðað við hvað þetta er mikið í isk?

Er búinn að borga miklu feitari summur undanfarið heldur en ég er að reyna að borga núna. Frekar pirrandi!


Ef ég skildi fréttirnar í kvöld rétt þá var feitur munur á gengi krónunar eftir því hvort maður notaði visa eða mc þannig að það er eins gott að passa sig á því.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby gunnar » Tue 07. Oct 2008 22:18

pallorri wrote:Image

:santa: :?:
:king: :?:


Þó þetta sé nú ekki rétti timinn til þess að hlæja að þá missti ég mig nú bara þegar ég sá þessa mynd :lol: :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby JonHrafn » Tue 07. Oct 2008 22:52

Jæja, þá eignuðumst við glitni án þess að borga krónu, errr Evru. Til hamingju.
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/07/fme_tekur_glitni_yfir/
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby gunnar » Wed 08. Oct 2008 00:26

Núna hef ég ekki nógu mikinn skilning á málunum en mig langar að átta mig betur á einu.

Erum við að tala um að þeir sem eigi hlutabréf í Landsbankanum og Glitni séu að tapa sínum verðmætum bara á einu bretti? Að hlutabréfin verði í raun og veru bara "strokuð" út og verðlaus ?

Endilega ef einhver getur útskýrt þetta fyrir mér þá væri það vel þegið.

Ég geri mér grein fyrir því að peningabréf t.d í Landsbankanum munu koma til með að falla mikið en hvað verður um hlutabréfin ?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Zyklus » Wed 08. Oct 2008 03:24

gunnar wrote:Núna hef ég ekki nógu mikinn skilning á málunum en mig langar að átta mig betur á einu.

Erum við að tala um að þeir sem eigi hlutabréf í Landsbankanum og Glitni séu að tapa sínum verðmætum bara á einu bretti? Að hlutabréfin verði í raun og veru bara "strokuð" út og verðlaus ?

Endilega ef einhver getur útskýrt þetta fyrir mér þá væri það vel þegið.

Ég geri mér grein fyrir því að peningabréf t.d í Landsbankanum munu koma til með að falla mikið en hvað verður um hlutabréfin ?


Já, það lítur allt út fyrir það að hlutabréf í Glitni og Landsbankanum séu nú verðlaus. Þetta er auðvitað hrikalegt áfall fyrir fleiri þúsund manns sem eiga bréf í þessum fyrirtækjum, en svona er þetta, hluthafar fá gróðann þegar vel gengur en þurfa líka að taka á sig tapið. Það er einfaldlega áhætta að fjárfesta í hlutabréfum.

Ríkið tekur yfir bankana, eignast 100%, hluthafar tapa öllu. En við verðum líka að átta okkur á því að hluthafar myndu hvort sem er tapa öllu þótt ríkið tæki ekki yfir þá því ríkið er væntanlega að taka yfir þá því þessir bankar eru í raun komnir í þrot.

Annars eru þetta svakalegir tímar sem við erum að upplifa, fyrir stuttu síðan átti allt að vera í lagi en svo nánast á einni nóttu hrynur þetta allt saman. Nú er spilaborgin einfaldlega að hrynja.

Það hefur mikið verið talað um „lendingu“ hagkerfisins, að við fengjum mjúka lendingu. Þetta sem við erum að horfa upp á er einfaldlega algjör brotlending.

Þetta eru miklir óvissutímar, það er ekki hægt að segja annað. Fólk bíður í von og ótta um hvað verður um sparnað þeirra sem eru með peninginn í peningamarkaðssjóðum. Það er enn ekki búið að opna fyrir þá.
Og enn er lokað fyrir viðskipti með bréf fjármálafyrirtækjanna, maður sér eiginlega ekki alveg hvernig þeir ætla að opna aftur fyrir þau viðskipti í þessari óvissu.

Þegar það verður opnað aftur fyrir viðskipti með fjármálafyrirtækin í Kauphöllinni mun úrvalsvísitalan líklegast fara vel undir 2000 stig (er núna í rétt rúmlega 3000 stigum), við munum sjá líklegast mesta fall í sögu hlutabréfamarkaða á Íslandi.
Og þar sem krosseignatengslin eru svo mikil hér að þá verða áhrif þess að stór fyrirtæki eins og Glitnir og Landsbankinn lendi í þroti þeim mun meiri.
Tökum t.d. Exista sem dæmi. Þeir eru stærsti hluthafinn í Kaupþing banka (með tæplega 25% eignarhlut) og þegar það verður opnað aftur fyrir viðskipti með Kaupþing munu bréfin í Kaupþing hrynja (þeir þurftu á neyðarláni frá Seðlabanka Íslands að halda) og þar með mun verðmæti Exista hrynja með. Svo eiga Bakkavararbræður stærsta hlutinn í Exista og Exista á stærsta hlutinn í Bakkavör o.s.frv...
Það verður því all svakalegt fallið þegar loks verður opnað aftur í Kauphöllinni. Og maður veltir fyrir sér hvort hún verði hreinlega ekki lokuð allavega út þessa viku.

En þetta eru svakalegir tíma sem við erum að upplifa, það er ekki hægt að segja annað (þótt þeir séu ekki skemmtilegir). T.d. hefði manni ekki órað fyrir því að hér myndi ríkja gjaldeyrisskortur þannig að fólk á meira að segja í erfiðleikum með að fara til útlanda því það getur ekki keypt gjaldeyri og fyrirtæki fá ekki gjaldeyri. Það er eins og við séum komin 50 ár aftur í tímann þegar gjaldeyrisskömmtun var hluti af veruleikanum.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby arnibjorn » Wed 08. Oct 2008 10:10

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig gengið virkar núna..

Seðlabankinn segist miða við að eur sé 131kr eins og í gær
http://www.m5.is/?gluggi=frett&id=60523

Skv. t.d. Spron og Landsbankanum er eur í 192

Erlendar síður eins og forbes.com segir miklu hærri tölur.. eur í 265 og gbp í 217.

Ef ég ætlaði að fara útí banka núna og kaupa pund... hvað myndi það þá kosta mig?? :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Kristjan » Wed 08. Oct 2008 10:16

arnibjorn wrote:Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig gengið virkar núna..

Seðlabankinn segist miða við að eur sé 131kr eins og í gær
http://www.m5.is/?gluggi=frett&id=60523

Skv. t.d. Spron og Landsbankanum er eur í 192

Erlendar síður eins og forbes.com segir miklu hærri tölur.. eur í 265 og gbp í 217.

Ef ég ætlaði að fara útí banka núna og kaupa pund... hvað myndi það þá kosta mig?? :lol:


Bróðir minn þurfti að kaupa Evrur til að borga fyrir meðferð á bakinu á sér. Fékk svona c.a. helmingi minna en hann hefði fengið fyrir 3 mánuðum. Og meðferðin er DÝR.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Einarsss » Wed 08. Oct 2008 10:37

1 usd = 125
1 Euro = 265
1 GBP = 218.44

samkvæmt forbes.com

Pundið búið að hrynja eða evran að styrkjast rosalega?
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Kristjan » Wed 08. Oct 2008 10:46

Þetta er eitthvað rugl, í gær var hægt að kaupa evrur á 150 kr
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby freysi » Wed 08. Oct 2008 11:33

E90 320i '06

birkire wrote:4 door þristar... LEIM
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 24 guests