jonthor wrote:
Zed III wrote:
spurning hvaða áhrif þetta hefur:
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/06/22/icesave_kostar_minnst_300_milljarda/efast að menn hafi gert sér grein fyrir þessum kostnaði
Nei, það er alveg rétt. Þessi samningur er mjög slæmur og verður vonandi felldur.
Eins og ég segi þá var ég að benda á jákvæða hluti. Það þýðir ekki að ég sé ekki ósáttur við margt. Ég er hræddur við að Icesave málið fari illa og þess heldur að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þvingi okkur í að verja krónuna til að hleypa útlendigum út, þá með því að eyða láninu frá AGS í það, sem væri, í mínum hug, stærri mistök en Icesave málið eins og staðan er í dag.
Þrátt fyrir að ég hafi verið að tala um jákvæðu hlutina við Ísland, þá var það fyrst og fremst vegna þess að þrátt fyrir allt er mjög margt hér gott til lengri tíma. Við flytjum út meira en inn, þ.e. afgangur af vöruskiptum (fá ríki geta státað af því í dag). Eigum gríðarlegar náttúruauðlindir, gott velferðakerfi, vel menntað fólk og eitt besta lífeyriskerfi í heiminum, sem eftir hrun stendur enn í yfir 100% af þjóðarframleiðslu.
Athugið að ríkissjóður fer inn í hrunið nettó skuldlaus (í raun með stórkostlega nettó eign ef við bætum eignum lífeyrissjóðanna við, því mjög mörg ríki evrópu eru með gegnumstreymiskerfi og því ekki búin að leggja krónu til hliðar fyrir lífeyrisskuldbindingar). Meðaltalið í EU er fyrir hrun um 64% af landsframleiðslu í skuld og helstu spár gera ráð fyrir að það hlutfall muni fara yfir 90%. Vinstimönnum í Bretlandi tókst til dæmis að auka skuldsetningu ríkisins í góðærinu og fara inn í hrunið með skuldir um eða yfir 100% af landsframleiðslu.
Þegar rætt er um sætu kærustuna sem er búin að fitna, þá þarf líka að muna hversu ljótar þær eru annarsstaðar, nú, til dæmis í Bretlandi!
Svo er bara heavy work out og þá má koma sér aftur í form!
Icesave er skömm, hvernig sem á það er litið. Icesave er hinsvegar ekki bara skömm landsbankastjóra eingöngu.
Það er bókað að Icesave á eftir að kosta þjóðina meira en húsið sem þessi gaur mokaði niður.
Annars er einn möguleiki í þessu sem engin hefur velt upp mér vitandi og það er hreinlega að láta bara innistæðusjóðinn duga fyrir inneignum, á ÍSLANDI OG ERLENDIS. Það er miklu ódýrara en að borga út þessa erlendu Icesave reikninga og samkvæmt rökunum sem hafa verið notuð á okkur þá væri lítið hægt að segja við því. Eins og er þá er tjónið um 2 milljónir á haus hvers íslendings. Ég er stór efins um að meðal íslenska fjölskyldan hafi átt meira en 8 milljónir á reikning þegar allt hrundi. Á móti kæmi minni niðurskurður og ástæðulaust að hækka skatta. Við ættum að eiga okkar stað í samfélagi þjóðanna þrátt fyrir það. Alveg eins og Roskilde er ennþá á landakortum Danmerkur þó Roskilde bank hafi kostað stóran hluta þjóðarinnar allt spariféð.
En Gísli hefur lög að mæla. Takmörkuð gagnrýnin hugsun er það sem kom landinu á kaldan klaka... hjarðeðlið segir til sín og er sennilega eitt mesta böl landsins, sama hvar það kemur niður hvort sem það er í skuldsetningu, fótanuddstækjum, jepplingaæði eða vísitölubílatísku.
Ef maður er sammála meirihlutanum þá borgar sig við að staldra í það minnsta við og spá í hlutina.