Quote:
Enn hvernig fer fólk að því að hoppa úr einni vinnu án þess að vera kominn með aðra annarstaðar, ég myndi ekki taka sénsinn EVER,
Ertu ekki alveg í sambandi við raunveruleikann? Fólki er oft sagt upp fyrirvaralaust (t.d. í Íslenskri erfðagreiningu fyrir ekki svo löngu síðan). Hvernig á það að vera búið að finna nýja vinnu? Reyndar fær fólkið laun í 3 eða 6 mánuði en þar sem því var sagt upp nánast fyrirvaralaust þá getur þú varla ætlast til þess að það sé búið að finna nýja vinnu?
Eins og bjahja nefndi hér að ofan er eðlilegt að hafa svolítið atvinnuleysi því það stafar af því að fólk er að hætta eða er sagt upp störfum og það tekur tíma að finna nýtt starf við hæfi.
Bara ef lífið væri svo einfalt að fólk gæti alltaf verið búið að redda sér vinnu við hæfi áður en því er sagt upp...
Finndist þér það betra að t.d. hámenntaður einstaklingur, segjum bara læknir, tæki það starf sem strax byðist honum (t.d. að vera ruslakarl, með fullri virðingu fyrir þeirri starfsstétt) þó svo að menntun hans kæmi að engum notum í því starfi og þjóðfélagið væri því að fara á mis við þá hæfileika og menntun sem einstaklingurinn hefði, eða finndist þér betra að þessi einstaklingur leitaði í nokkra mánuði að starfi þar sem hæfileikar og menntun hans kæmu að fullum notum?
Quote:
Ég heyrði eina góða leið til að nýta sér atvinnuleysi á íslandi, sem leyfir manni að flytja til spánar og vera á atvinnuleysis bótum þar, þar er maður ekki krafinn um að taka vinnu, og maður verður að koma aftur á 3vikna fresti og skrá sig atvinnulausann, svo flýgur maður til brasilíu þar sem peningurinn frá Spáni er miklu miklu meira virði og maður lífir bara ágætlega á honum,,, æðislegt kerfi ekki satt,
Eins og margbúið er að nefna þá verða alltaf til sníkjudýr. Það er ekkert við því að gera. Það verða alltaf glufur í kerfinu sem óheiðarlegt fólk mun nýta sér.
Quote:
Ég hef littla virðingu fyrir fólki sem lítur svo stórt á sig að það getur ekki tekið láglauna vinnu til að bjarga familíunni frá skuldsetningu heldur setur sig bara í ofur skuld vonandi eftir að fá góðu vinnunna seinna.
Er þetta ekki einmitt góð ástæða fyrir því að hafa atvinnuleysisbætur svo að fólk sem er að leita að störfum við hæfi sökkvi sér ekki í skuldir á meðan að atvinnuleit stendur?
En auðvitað mega bæturnar ekki vera það háar að þær letji fólk til að leita sér að störfum.