bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 23:40

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 71 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 23. Jan 2008 13:01 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Posts: 844
Location: Akureyri
saemi wrote:
Stanky wrote:
Treystir þú manni sem sér og les ekki samninga sem honum eru lagðir fyrir? Treystir þú Vilhjálmi? Þessum útsmogna lygahrappi sem þykist aldrei neitt vita og spilar alltaf góða gæjann?

Ég er nú alls ekki hlynntur 4 flokka stjórn, enda hefur svoleiðis aldrei gengið. En maður veit ekki hvort maður vilju Hárkollu Villa eða halda þessu vinstri/miðju bullshitti sem er núna.

Það ætti einhver að grípa inn í og stofna til nýrra Borgarstjórnarkosninga bara í Reykjavíkurkjördæmum, en ekki öllum sveitarstjórnum. (Ég held að það standi í lögum að Sveitastjórnarkosningar verða að fara fram allar á sama tíma).

Þetta stjórnleysi lagast ekki fyrr en árið 2010 þegar það verða nýjar Sveitastjórnarkosningar.

ps. Flugvöllurinn verður færður, alveg bókað... bara spurning hvenær. (Ekki það að ég hafi einhverja skoðun á því)

pps. Stjórnmál eiga ekki að snúast út á hefndir.

Ísland Besta Bananalýðveldi í heimi.


Ég treysti ekki stjórnmálamönnum nei, því miður. Sennilega eru einu stjórnmálamennirnir sem ég treysti til að fara eftir sannfæringu sinni Ögmundur og Pétur Blöndal. Það eru einu aðilarnir sem ég hef reynt að því að standa við orð sín og skoðanir í stað þess að reyna að halda sem flestum góðum og elta atkvæði.

En það að segja að Villi sé útsmoginn lygari og spila alltaf góða gæjann.... ertu ekki að rugla honum og Herra Hrappson saman ????? :lol:

Nei en án gríns þá sé ég ekki að Villi sé neitt öðruvísi en hinir, hann er að spila alveg eins og aðrir stjórnmálamenn í kringum hann. Ég treysti honum betur en vinstri stjórn 4ra flokka já. Fyrir utan að hann er ekki að fara að taka við heldur Ólafur.

Það er ekki hægt að færa flugvelli. Það er bara hægt að byggja nýja. Það má vel vera að flugvöllurinn í Reykjavík verði lagður niður, en þá verður bara innanlandsflugið út frá Keflavík og mun stórminnka frá því sem er nú. Ég vona að slíkt gerist ekki, það væri mjög slæmt fyrir landsbyggðina sérstaklega. Það er nú kannski fullmikið að fara út í þá umræðu hér, en ég segi bara aftur að það er 95% af fólkinu sem er að tjá sig um flugvallarmálið sem hefur ekki vit á því sem það er að segja.

Stjórnmál eiga að sjálfsögðu ekki að snúast um hefndir, ... en þau snúast um völd!


SÆMA Í BORGARSTJÓRN! :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 23. Jan 2008 13:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
xtract- wrote:
SÆMA Í BORGARSTJÓRN! :lol:


X-M

M power to the people! :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 23. Jan 2008 13:58 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Hahaha, já kjósa mig.

Nei, maður myndi aldrei nenna að fara í stjórnmál. Enda er það því miður svo að besta fólkið sem kann að stjórna fer í einkageirann, það nennir enginn með viti að standa og karpa fyrir þau laun sem eru í boði sem stjórnmálamaður.

X-Mpowah

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 10:23 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Posts: 2725
Location: Hafnarfjörður
En hvernig er það með hann Ólaf M, gengur hann heill til skógar? Hann er nú hálf veiklulegur að sjá...

Veit einhver hvaða veikindum hann var að stíga upp úr?

_________________
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 12:50 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Þunglyndi eftir erfiðann skilnað


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 14:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Jónas wrote:
Þunglyndi eftir erfiðann skilnað


Er nú að vinna með konu sem þekkir vel til vina Þessarar fjölskyldu.

Það var nú meira en þunglyndi í gangi.

Sá nú ekki betur en að það hafi verið mótmæli í beinni útsendingu í dag þegar var verið að kjósa til forseta borgastjórnar.

Annars er löngu vitað að sjálfstæðismenn eru valda sjúkustu menn sem fyrir finnast.

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 14:27 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Hannsi wrote:
Annars er löngu vitað að sjálfstæðismenn eru valda sjúkustu menn sem fyrir finnast.


Hvernig rökstyður þú þetta?

Ertu að meina af því að þetta er stærsti stjórnmálaflokkurinn á landinu að þá sé eitthvað skrítið að hann hafi mest völd?

Það kallast ekki valdasýki, það kallast lýðræði :wink:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 14:59 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Ég hlustaði aðeins á það sem fram fór þarna og þvílíkar hetjuræðurnar sem voru í gangi, fékk kjánahroll að hlusta á þetta.

Þarna mæta stuðningsmenn úr ungliðahreyfingu flokkanna sem eru að fara frá völdum og láta öllum illum látum. Er fólk alveg búið að gleyma hvernig fór fyrir 100 dögum síðan? Veit nú ekki betur en svipað hafi verið upp á teningnum þá þegar Björn Ingi laug að sjálfstæðisflokkunum og þóttist vera veikur á meðan hann var að mynda stjórnarsamstarf.

Fjárlslyndir komu inn þessari blessuðu konu sem sagði sig úr flokknum en sér ekki sóma sinn í að segja af sér en situr áfram. Veit ekki betur en fólkið í borginni kjósi flokka en ekki ákveðnar manneskjur... þar af leiðandi hefur hún ekkert með að sitja áfram því hún var ekki kosin beint í borgarstjórnina!

Stuðningsmenn fráfarandi stjórnar ættu aðeins að hugsa sig um áður en þeir byrja að drulla um eitthvað sem er nánast að endurtaka sig frá því áður þar sem þeir sátu hinumegin við borðið!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 15:02 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Posts: 2807
Location: Reykjavík
Hannsi wrote:
Annars er löngu vitað að sjálfstæðismenn eru valda sjúkustu menn sem fyrir finnast.


Hvernig myndir þú lýsa því þegar 4 flokkar (5 ef taldir eru með óháðir) sameinast til að ná völdum og geta ekki einusinni komu sér saman um málefnaskrá?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 15:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Þeir eru valdasjúkir vegna þess að þeir eru peninga gráðugir. Því meiri völd sem þeir fá því meira geta þeir leikið sér með peningana okkar.

Lítið um það að sjálfstæðisflokkurin hefur gert eitthvað fyrir mig og mína (nema viðkomandi eigi peninga) Einu sem kjósa sjálfstæðismenn í minni fjölskyldu eru þeir sem eiga fyrirtæki og peninga.

Þeir gera ekki SKÍT fyrir litla mannin!!!

Rökstuðningur fyrir því: Ég og þeir sem vinna hjá fyritæki hér í mínu sveitafélagi þolum ekki sjáfstæðismenn því þeir gera EKKERT til að bæta okkar lífskjör. (Til þess má geta að eigendur fyrirtækisins eru sjáfstæðismenn)

Það er verið að taka einhver rúm 30% af okkar litlu launum sem duga okkur varla út mánuðinn svo ofan á það er okkur neitað um 3% launahækkun á meðan þingmenn hækka sín eiginn um 6%. Faðir minn er einn launahæðsti einstaklingurinn hjá fyrirtækinnu og sammt rétt nær að sjá fyrir fjölskyldu sinni!

Svo ég taki nú mig sem dæmi þá er ég að vinna 40-60 tíma á viku eða 184-270 tíma á mánuði, fyrir skatt ef ég er að vinna 184 tíma á mánuði er ég að fá skitinn 135600kr!!!! Og nú spyr ég vernig mundu þið lifa af mánuð á 116 þús kr?????? (skólafólk auðvitað ekki tekið með)

Ef mikið er að gera (sem er aldrei því kvótinn var skertur á þorski) þá væri maður kannski að ná þessum 270 tímum og væri maður þá nú alveg sáttur EN útkerður!! En bætast við heilar 108 þús kr sem gera heildinna 243 þús sem svo skattur er takinn af (minnir 34%) svo persónuafsláttur 27 þús rúmar svo dregið af manni hellingur í alskonar dót sem skilur eftir 162þús rúmar.

Skrítið að ég þoli ekki sjálfstæðismenn sem lofa að hjálpa litla manninum en í staðinn gerir ekkert fyrir okkur.

Tala nú ekki um bensínverðið ofan á það!!!

Kv.
Einn sem er verulega pirraður á þessu!!! :evil:


P.S fyrir þá sem seigja að það séu ekki bara sjáfstæismenn þá kýs ég engan flokk, því satt að seigja hjálpar ENGINN flokkur mér og mínum að lifa betra lífi hér á landi!!! Sjálftæðismenn fara bara svo í taugarnar á mér fyrir að lofa einhverju sem þeir gera ekki.

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 15:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
Jesús fáðu þér aðra vinnu drengur :shock:

Annars er ég alveg sammála þér, litli maðurinn hefur alveg gleymst.

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 15:49 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
lawl, finnst þér ~35% skattur hár?

Skoðaðu löndin í kringum okkur.

Og ekki segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekkert gert, skoðaðu hagsöguna.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 15:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Jónas wrote:
lawl, finnst þér ~35% skattur hár?

Skoðaðu löndin í kringum okkur.

Og ekki segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekkert gert, skoðaðu hagsöguna.

Mér er skít sama um löndinn í kringum okkur ég á ekki heim þar!!

þeir lækk jú eitthvað en á móti hækka þeir annað!!

Ekki reyna að verja sjálfstæðisflokkinn hann gerir gott bara fyrir þá sem eru að þéna að viti!! ég sem láglauna maður hef ekki greitt skít á því sem þeir gera!!

Málið er Haffi að maður getur ekki fengið vinnu eins og ekkert sé nema kannski í rvk ekki auðvelt að finna nýja vinnu hér á suðurnesjunum!

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 16:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Þú ert ungur, ómenntaður (geri ég ráð fyrir) og í láglaunavinnu. það er bara ekki meira í boði fyrir svona störf, eins ömurlegt og það hljómar. Það hefur aldrei og mun aldrei vera mikill peningur í fiski (nema þá á sjónum), enda er þetta meira og minna mannað af útlendingum.

Það sem sjálfstæðisflokkurinn hefur helst staðið fyrir er að greiða fyrir fyrirtækjum svo þau eigi auðveldara með að standa sig og vaxa, sem leiðir af sér meira framboð af vinnu og svo hærri laun. Síðan hefur hann einbeitt sér að lífeyriskerfinu svo komandi kynslóðir standi ekki snauðar við eftirlaun.

Íslandi rúllar í dag á því að skólafólk og útlendingar eiga að manna láglaunavinnu en Íslendingar vinnu sem krefst meiri meiri þjálfunar eða menntunar. Þ.a. að ef þú ferð ekki í skóla þá verður þú fyrr eða síðar screwed með vinnu og tekjumöguleika.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 24. Jan 2008 16:15 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Hannsi wrote:
Þeir eru valdasjúkir vegna þess að þeir eru peninga gráðugir. Því meiri völd sem þeir fá því meira geta þeir leikið sér með peningana okkar.


Ég skil ekki þessa röksemdarfærslu, en gott og vel ætla ekki að festa mig í því.

Ég get hins vegar tekið undir það að sjálfstæðismenn séu peningamenn. Ekki að þeir séu eitthvað peningagráðugri heldur en næsti maður, hvaða flokk sem hann er í.

En það er ekki tilviljun að þeir sem eru með mikið á milli handanna eru sjálfstæðismenn oft á tíðum. Sá flokkur styður einkaframtak og fólk sem hefur komist áfram í lífinu peningalega séð. Hvort sem það var með að fá kvóta frá pabba sem við hin eigum alveg jafn mikinn rétt á eða með því að byrja með 2 hendur tómar og byggja upp frá grunni með harðri vinnu.

Það er skömm að því að þú skulir vera á þessum launum sem þú talar um. Fyrir þetta vinnuframlag ættir þú að vera allavega á þreföldum þessum launum. Ég skil ekki af hverju þú ert að vinna þarna, eina skýringin hlýtur að vera von um stórbreytingu handan við hornið með betri kjörum... Eins og atvinnuástandið er í dag þá ætti enginn fullfrískur ungur karlmaður sem nennir að vinna að þurfa að vinna á þessum launum.

Ef fyrirtækið sem þú ert að vinna fyrir sér sér ekki sóma í því að greiða mannsæmandi laun, þá er það á ábyrgð starfsfólksins að krefjast hærri launa. Það er til lítils að kvarta yfir því að eigendur borgi manni ekki nógu góð laun, maður verður annaðhvort að knýja fram hærri laun með samstöðu og samningum eða fara annað. Þú gætir verið á hærri launum með að vinna á kassa í matvörubúð. Það er slegist um fólk á vinnumarkaðinum eins og staðan er í dag.

Sjálfstæðismenn hafa nú ekki verið þeir duglegustu í að lofa að hjálpa litla manninum, það eru hinir flokkarnir sem hafa meira gefið sig út fyrir það!

En sem dæmi um að Sjálfstæðisflokkurinn geri ekki skít fyrir litla manninn, þá spyr ég nú bara hvort hann græði ekki einmitt á því sem nýbakaður meirihluti er að gera, að lækka útsvarið! Ég veit að þú græðir ekki á því... þú býrð ekki í rvk.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 71 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group