Thrullerinn wrote:
bebecar wrote:
*edit - það má kannski bæta því við að ef þetta verður raunin í USA þá mun það smita allan heiminn og þá verður líklega hvergi betra að vera en einmitt á Íslandi.
Svolítið súrt að vona að ástandið versni á heimsvísu til að sé gott að búa
á Íslandi, smá "þjóðernissinni" á milli línanna

Það þarf mikið að gerast til að það verði beinlínis slæmt að búa á
skerinu og það er í raun beinlínis móðgun að segja að hér væri kreppa
m.v. hvað afar okkar og ömmur upplifðu!
Þetta var alls ekki það sem ég meinti
Aðeins að benda á það að Ísland er líklega með skástu stöðum að vera á í djúpri kreppu... hér er nóg matur, hiti og orka. Þetta átti að skiljast í samhengi við Celeste spádómin um mataruppþot. Það þýðir ekki að maður óski þess að heimurinn versni svo maður sjálfur hafi það "minna skítt".
Mér finnst það nefnilega horfa skökku við að fólk flýji land núna þegar flest lítur út fyrir að nágrannalöndin séu á svipaðri leið. Það getur verið verulega erfitt fyrir útlendinga að fá vinnu t.d. í DK þegar nóg er af dönum á atvinnuleysisskrá, það má því vera að það verði hreinlega að fara úr öskunni í eldinn að flýja land.
Og jú, það að tala um kreppu núna er skilgreiningaratriðið (tvær ársfjórðungar með samdrætti) en ég er nú nógu gamall og á nógu gamla foreldra til að geta upplýst mig um djúpu kreppuna 1929. Afi, sem var ágætlega efnaður útgerðarkall, þurfti að selja fjölskyldugullið þá til að hafa fyrir nauðsynjum. Sú kreppa stóð líka í fjögur ár. Við erum rétt byrjuð á kreppunni núna þannig að hún getur enn versnað.
En ég frábið mér því að vera bendlaður við þjóðernisinna - væri sármóðgaður

ef það væri meiningin sem ég reikna nú ekki með að sé tilfellið
