Poly urathne eða stífir gúmmí mótorpúðar

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Poly urathne eða stífir gúmmí mótorpúðar

Postby gunnar » Sat 11. Apr 2009 22:42

Datt í hug að setja inn smá update hér...

Ég setti sem sagt þessa mótorpúða sem ég keypti í N1 undir bílinn og fór í jeppaferð.

Ég var búinn að keyra svona 50 km á þessu stöffi þegar einn púðinn gaf sig :lol: :lol: :lol:

Málið er það, og þetta er eiginlega hálfgert klúður að minni hálfu að púðarnir sem ég keypti eru eiginlega "steyptir" í sitthvorn endann. Það er þá þannig að það er bara platti með bolta límdur sitt hvoru megin við gúmmíið. Þannig að þegar kassinn "togar" upp þegar maður er á inngjöf þá reif hann bara púðann í sundur :lol:

Púðarnir leit ca svona út:

Image

Svona græjaði ég þetta í ferðinni. Strappaði ss bara kassann niður. Þetta hélt svona ágætlega, náði stundum að losa sig þó.

Image

Image

Image

Leysti þetta svo svona:

Image

Sem betur fer var einn í ferðinni með borvél á sér. Ég gat því borað draslið út, boraði svo 10 mm gat í gegnum púðann sjálfan og setti svo bara bolta í gegnum þetta. Það virkaði flott.

Ég er búinn að panta mér poly sett frá Þýskalandi sem er einmitt "heilboltað" bara í gegn. Það mun koma til með að valda smá titringi en ég ríf þetta þá ekki í sundur svona :lol: :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Poly urathne eða stífir gúmmí mótorpúðar

Postby IvanAnders » Sun 12. Apr 2009 04:41

Þarft heavy duty púða þegar þú ert að vinna með svona svaðalegt tog!!!
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: Poly urathne eða stífir gúmmí mótorpúðar

Postby gunnar » Sun 12. Apr 2009 13:32

IvanAnders wrote:Þarft heavy duty púða þegar þú ert að vinna með svona svaðalegt tog!!!


Segðu, ég verð bara að læra að hemja mig á gjöfinni :lol: :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: Poly urathne eða stífir gúmmí mótorpúðar

Postby Jón Ragnar » Sun 12. Apr 2009 16:08

hahaha

heavy duty :lol:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests