camaro F1 wrote:
ÞÚ ERT SVO SKEMMTILEGUR SÆMI......
hvernig skilgreinir þú þá þegar fólk veðsetur eignirnar sínar, er það þá að afsala sér eignini, afsala sér umráðarrétt yfir eignini....
áttu þú þá ekkert í kofanum þínum, ertu bara að leigja?
erum við þá sem þykjumst eiga íbúðir ekkert að gera annað en að leigja þær.....
sé ekki hvað þú ert að meina með þessu....
ef aron greiðir 500þ inn á lánið sitt er hann þá að henda aurnum ekki að eignast meira í bílnum, sé ekki hvað það skiptir máli hvort lánið sé 60% eða 95%,
finnst þetta bara vera leiðindar komment hjá þér eins og þú átt til að koma með....
skemma posta hjá öðrum, maður ætti kannski að kommentera verðið á m5 hjá þér, segir alltaf að aðrir séu að okra.....
skil ekki til hvers menn koma með svona hroka inn á spjallið, barnalegt.
kv bæzi
Hvaaa ertu eitthvað viðkvæmur fyrir því hvað mér finnst um bíla á 100% lánum ...
Svo ég segi nú AFTUR það sem ég sagði hér að ofan. Ég er að tala um yfirtökubílana, bíla sem eru á 100% lánum. Ég er ekki að tala um öll lán.
Það sem ég er að meina er hvað mér finnst það asnalegt þegar menn tala um bílana "sína" þegar áhvílandi er sama og verð bílsins. Það finnst mér vera eins og að leigja íbúð. Ef þú ætlar að kaupa íbúð verður þú allavega að hafa efni á útborguninni. Þú getur ekki sagst eiga íbúð ef þú bara leigir og borgar mánaðarlega greiðslu til að vera í henni... ekki satt?
Þú sérð kannski ekki mun á því hvort lánið er 60% eða 95% af verði bílsins. Mér finnst hins vegar stór munur á því. Sá sem er með 60% lán á þá 40% af bílnum í mínum huga, hinn 5%. Þess vegna finnst mér 100% lán vera sama og eiga 0% í bílnum!!!
Varðandi það að þetta sé leiðindakomment hjá mér til að skemma þráðinn þá vísa ég því nú bara á bug. Ég var ekki einu sinni að kommenta á þennan blessaða bíl eða .. eiganda .. hans. Ég var að kommenta vegna ummæla sem komu frá Fart í þráðnum varðandi að lán væru í lagi.
Ég skal alveg viðurkenna að þessi umræða er ekki til fyrirmyndar í þræðinum, enda tók ég hana út til að halda þessu fyrir utan upphaflega þráðinn. Þar sem þetta gerist, þá er stofnendum alltaf velkomið að hafa samband við stjórnendur sem geta gert þetta sé málið komið vel út fyrir efni upphaflega þráðsins. Eigandi þráðsins gerði það nú ekki í þessu tilviki heldur gerði ég það upp á mitt einsdæmi.
Hvaða dæmi hefur þú um að ég sé að koma með leiðindakomment í þræði hér á spjallinu???
Endilega komdu með komment á verðið á M5-inum hjá mér. Ég vil gjarnan fá rök fyrir því að ég sé að okra eins og þú ert að vísa í.
Hvar var að greina hroka frá mér í ummælum mínum?
Fólk hefur mismunandi skoðanir, en ég hef hingað til ekki staðið í þeirri meiningu að í mínum skoðunum kæmu fram hroki barnalegheit og leiðindar komment á þessum spjallvef.