Fyrsta bréf Páls til okkar
Quote:
Ég sá að það var verið að deila Páli Óskari á TheVikingbay, og vil ég vinsamlegast biðja ykkur um það að fjarlægja það torrent tafarlaust! Páll Óskar er frændi minn, og hann á sko ekki mikinn pening þrátt fyrir frægð sína. Ég hef fengið nóg af ykkur, þið haldið að þið séuð æðri en allir aðrir og að þið getið leikið guði á ykkar ömurlegu torrent síðu
Í fyrsta lagi þá er nánast engin af þeim sem að "deila" þessum skrám með höfundarrétt á þeim og það er ömurlegt fyrir þessa tónlistarmenn sem minna eiga sín.
Ef þið ætlið að deila einhverju, deilið þá því sem þið hafið samið sjálfir, og eigið höfundarrétt á! Er ég nú frekar viss um að ekki neitt sem þið hafið gert sé þess vart að hlusta á.
Fjarlægið þetta strax, annars tala ég við Pabba minn, en hann er lögfræðingur og styður mig 100% í þessari baráttu gegn lágkúrulegum aumingjum eins og ykkur!
-Virðingarfyllst-
Páll Gunnarson, tónlistarnjótandi.
Svar okkar til PálsQuote:
Eftir að hafa rætt þetta við kollega mína hafa þeir komist að því að taka þá ákvörðun að eyða plötunni af TheVikingBay. Við gerum okkur grein fyrir því að sala á Allt fyrir ástina hefur ekki gengið vel, þrátt fyrir að vera söluhæsta plata Íslands.
Héðan í frá mun TheVikingBay fjarlægja allar plötur Páls Óskars sem eru söluhæstar á Íslandi en ganga ekki vel í sölu.
....Djók.
Pabbi minn er pípulagningarmaður og ekki hikar hann við að hjálpa mér við pípulagnir í mínum húsum er ég hringi í hann, augljóslega myndi pabbi þinn hjálpa þér við að gera þig að fífli ef þú biður hann um það.
Kv, Unnar Geir, talsmaður TheVikingBay.
Svo annað bréf..
Fyrsta bréf CAOZ hf til okkarQuote:
Unnar Geir Ægisson
Vallarhúsum 45
112 Reykjavík
Kt. 130189-2459
Á síðu sem þú ert skráður talsmaður fyrir (þ.m. ábyrgðarmaður) -
www.thevikingbay.org er mynd okkar Anna og skapsveiflurnar aðgengileg. Myndin hefur augljóslega verið afrituð ólöglega úr sýningu Stöðvar 2 þann 1. janúar sl. Skv. niðurhalstölum á síðunni, þá hefur myndinni okkar verið halað 306 sinnum niður af síðunni ykkar.
Ég vil skora á þig að fjarlægja myndina af vefþjónum þínum tafalaust, því það liggur enginn dreifingarsamningur fyrir sem heimila ykkur að dreifa myndinni á ykkar netþjónum.
Jafnframt því að að gera kröfu um að fjarlægja myndina tafarlaust af vefþjóninum, gerum við kröfu um greiðslu fyrir niðurhalinu. Krafa okkar er byggð á leiðbeinandi smásöluverði DVD disks sem var að koma út á vegum Senu hf. 1.990 kr. pr. stk með virðisaukaskatti,(1.598 kr. án vsk). Samtals nemur krafa okkar 608.940 krónum með virðisaukaskatti. Þú færð 30 daga greiðslufrest á kröfuna. Verði krafan ekki greidd innan þess tíma, verður krafan send lögfræðingi okkar til innheimtu. Upphæðin óskast lögð inn á reikning 0111-26-000044, Kt. 620201-3320.
Virðingarfyllst,
Hilmar Sigurðsson
framkvæmdastjóri CAOZ hf.
Ægisgata 7
101 Reykjavík
Sími +354 511 3550
Svar okkar til CAOZQuote:
Sæll Hilmar.
Ég er talsmaður vefsins, ekki ábyrgðarmaður vefsins. TheVikingBay er hýst í öðru landi en Íslandi og er ábyrgðarmaður vefsins ekki staðsettur hér á landi.
Eftir að hafa lesið bréf þitt í gegn tek ég eftir nokkrum villum, og mun ég telja þær hér upp:
Ekkert efni er hýst á netþjónum TheVikingBay eins og þú heldur fram, þannig virkar ekki BitTorrent og ég hef ekki tíma til að útskýra fyrir þér hvernig BitTorrent virkar, því ég er afar upptekinn eins og er.
Þú getur ekki ætlast til þess að rukka TheVikingBay fyrir hvert niðurhal, þar sem í fyrsta lagi; Þú getur það ekki yfir höfuð, og í öðru lagi, "ef" þú gætir það, þá væri aldrei hægt að segja til hvort hver sá sem hlóð niður umtalaðari skrá hefði í raun keypt hana, svo ekki er hægt að tala um missir í sölu.
Þú getur farið eins langt og þú vilt með þetta, þú getur farið með þetta til hæstaréttar ef þú vilt, en þú munt ekki fá neitt frá mér því að ég tek ekki ábyrgð á þessum vef, og sá sem tekur ábyrgð fyrir honum er í fullum rétti.
Takk fyrir, ef þú vilt hafa frekari samband við mig, skaltu gera það í síma 823-1941.
Unnar Geir Ægisson, TALSMAÐUR TheVikingBay.
