SteiniDJ wrote:
íbbi_ wrote:
það vita það nú líka flestir sem hafa keyrt RR að það er ekkert minni snilld en að keyra X5.. og varðandi að range roverinn sé drasl þá bilar hann vissulega mikið, en X5 bilar ekkert minna, ekki gleyma að þessi kynslóð RR er hönnuð meðan þeir voru í eigu bmw og eru oft í djóki kallaðir bmw x7,
Ég keyrði Range Rover Sport HSE (og SE líka) 2006/7 reglulega og ég get alveg staðið við það þegar ég segi að þetta séu hörmulegir bílar.
Þegar Range Roverinn var í okkar eigu, þá þurfti að laga alla fjöðrun, allt tölvukerfið, skipta um pústkerfi og gírkassa. Ekkert þjösn eða neitt slíkt, bara lélegt build quality eða eitthvað álíka. X5 hefur reynst mikið betri og skemmtilegri en RR.
Prefacelift RR er algjörlega x5 út í gegn fyrir hvernig loftpúðakerfið er uppbyggt og eru líklegast örlítið tíðari bilanir í RR en X5.
Meint bilanatíðni í Stóra Range þykir mér voðalega uppblásin blaðra sem hefur verin blásin upp held ég að sögu bretans á bílaframleiðslu. Þegar BMW kemur inní þetta L322 stórlagast öll framleiðslan á bílnum og hann verður algjör snilld.
Síðan hallast aðeins á fæti þegar RR sport og Disco 3 koma inní þetta og er meiri bilanir í þeim en stóra bílnum , en þeir bílar eiga mjöööög fátt sameiginlegt með stóra bílnum.