yfirtaka - auðveld kaup - engin útborgun

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bebecar » Fri 13. Jun 2008 11:35

Giz wrote:
Þegar menn verða svangir þá gera þeir bara það sem þarf að gera. Það er fólk þarna úti sem situr uppi með jafnvel tvo bíla sem það getur ekki losað sig við og ná ekki endum saman og eiga varla fyrir mat.


Nú er ansi magnað að horfa á þetta utanfrá, hversu margir ætli séu í slíkri stöðu? Og hvert ætli stigið þar á undan sé?

Ég hef til gamans verið að skoða íslensk blöð undanfarið og það er stundum ansi hlægilegt á hvaða verði sumir bílar eru auglýstir á, langt undir markaðsverði augljóslega og langt undir verði í DE oft á tíðum.

G


Það merkilega er að þetta er eiginlega búið að vera svona í nokkuð mörg ár. Ég man alveg eftir blaðaumfjöllun þegar ég fór út um mæðrastryksnefnd þar sem sagt var frá því að fólk ætti ekki fyrir mat vegna bílalána. Staðan er sú sama í dag. Það merkilega er kannski að í einhver 2-3 ár milli gat fólk borgað af þessu og í stað þess að borga niður lánin, leggja fyrir eða gera eitthvað annað en að eyða peningunum, virðist sem fólk hafi bara náð sér í enn dýrari bíla eða fleiri.

Nú er hafinn útflutningur á vinnuvélum og vörubílum. Með þessu áframhaldi verður kannski hægt að flytja bíla aftur út til DE með hagnaði :roll:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunnar Þór » Fri 13. Jun 2008 13:19

fart wrote:Hlýtur að vera hrikalegt að hafa séð sig knúin til að taka lán til að geta flottari bíl en maður hafði efni á.


Ertu að meina "dýrari en maður hefur efni til að borga af" eða ertu að segja að það sé hrikalegt að skulda eitthvað í bílnum sínum?
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby fart » Fri 13. Jun 2008 13:35

Gunnar Þór wrote:
fart wrote:Hlýtur að vera hrikalegt að hafa séð sig knúin til að taka lán til að geta flottari bíl en maður hafði efni á.


Ertu að meina "dýrari en maður hefur efni til að borga af" eða ertu að segja að það sé hrikalegt að skulda eitthvað í bílnum sínum?


Ég er aðalega að meina að neyslukröfurnar í samfélaginu voru orðnar dálítið miklar, og til að halda í við "hina" og dragast ekki afturúr virtust menn oft fara út í kaup sem þeir höfðu ekki efni á, og þá er ég að meina skuldbindingar sem þeir gátu ekki staðiði við ef aðstæður breyttust eitthvað.

Ég er ekki að reyna að vera leiðinlegur eða skjóta á einn eða neinn. Málið var að ég hef það dálítið á tilfinningunni að menn hafi verð að kaupa sér hluti upp á framtíðarcashflow og bara spáð í síðasta launaseðil og næstu afborgun, en ekki hugsanlega breyttum aðstæðum.

I could be wrong.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Gunnar Þór » Fri 13. Jun 2008 13:46

Klárlega mikið til í því - enda búið að vera allt of auðvelt, sérstaklega fyrir ungt fólk sem hefur kannski litla sem enga reynslu í peningamálum, að koma sér í djúsí neysluskuldir.
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby A.H. » Fri 13. Jun 2008 20:57

bebecar wrote:En svona fyrir þá sem ekki vita, hvað gerist eiginlega þegar lyklinum er skilað inn - hvernig fara menn ílla út úr því og hve ílla?


Ég hef heyrt mörg slæm dæmi um þetta. Það sem gerist er að skuldarinn er bókstaflega rúinn inn að skinni. Það er algjört glapræði að láta lánafyrirtækin taka bílana, menn eru MUN betur settir með því að greiða með bílnum í sölu.
Image
Núna: Z3.
Áður: E21, E30, E36, E38.
User avatar
A.H.
Kassabílstjóri
 
Posts: 151
Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Location: Grafarvogur

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 80 guests