Sæl öllsömul
Auðvitað setur starfsmaðurinn mig ekki í erfiða stöðu því hvorki ég né Brimborg gerðu neitt rangt. Þvert á móti var algerlega farið eftir mjög ströngum reglum sem við settum um bílinn þegar hann kom til landsins. En öllum getur orðið á mistök og í stað þess að leggjast í volæði þá lítur maður á þessi mistök sem tækifæri. Tækifæri til að koma þeim skilaboðum á framfæri að það þarf að beisla kraftinn af ábyrgð. Við getum verið sammála um að ekki veitir af því að menn meðtaki þann boðskap.
Ford GT var m.a. fluttur inn til að koma þessum skilaboðum á framfæri og þá sérstaklega gagnvart yngra fólkinu því ég held við getum verið sammála líka um það að ekki er auðvelt að ná til margra ykkar eins og dæmin sýna. Hefðbundin áróður var ekki að virka.
Því vildi Brimborg leita nýrra leiða og með því að nota Ford GT sem aðdráttarafl til að ná athygli þá er í kjölfarið á þeirri athygli hægt að koma þeim boðskap til skila að fara verður með öll ökutæki af ábyrgð. Einnig vildi Brimborg með innflutningi á bílnum hvetja yfirvöld til að koma upp alvöru akstursbraut og um leið styðja við bakið á þeim aðilum sem þegar höfðu hafið byggingu brautar. Hefur bíllinn einmitt verið notaður til kynningar á væntanlegri braut og var t.d. viðstaddur fyrstu skóflustungu ásamt bræðrum sýnum, Focus ST og Mustang.
Brimborg kynnti Ford GT á Akureyrar flugvelli í júní í fyrra og okkur tókst að fá alla fjölmiðla landsins til að koma á staðinn og fengum gífurlega umfjöllun út á bílinn og um leið á átakið að beisla kraftinn af ábyrgð og mikilvægi þess að smíða akstursæfingasvæði. Einnig lagði fjöldi manna leið sína í Brimborg að skoða gripinn og einnig höfum við farið í fjölda bíltúra með yngra fólk og farið yfir boðskapinn í leiðinni. Umræður á spjallrásum og á blogginu voru á sama tíma miklar og tókum við þátt í þeim með sama boðskap. Ef okkur hefur tekist með Ford GT og átakinu að beisla kraftinn af ábyrgð að koma í veg fyrir þó ekki væri nema eitt slys þá er ég ánægður.
Nú, svo lendir Ford GT í þessu tjóni. Þó það sé kaldhæðnislegt þá verður það til þess að umfjöllunin um þennnan goðsagnakennda bíl fer aftur á flug. Og enn og aftur nýtum við hjá Brimborg tækifærið til að koma boðskapnum um að beisla kraftinn af ábyrgð til skila.
Auðvitað er óhappið leiðinlegt atvik en það verður ekki aftur tekið og því er eina rétta að líta á þetta sem tækifæri. Eins og þið sjáið þá er umræðan gríðarleg og nánast hver einasti kjaftur á spjallrásum bílaáhugamannna hefur lesið fréttir okkar og bloggið og þar með boðskapinn um að beisla kraftinn af ábyrgð. Heimsóknir á vef Brimborgar vegna fréttarinnar þar sem boðskapurinn var tíundaður voru svo gríðarlegar að vefurinn fór upp í að vera einn af 10 vinsælustu vefum landsins.
Ég efast um að hægt hefði verið að ná til ykkar bílaáhugamanna á betri hátt þótt ekki hafi það nú verið planið í upphafi að klessa bílinn til að ná athygli.
Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld verður einmitt viðtal við mig og bíllinn sýndur tjónaður og þar nýti ég tækifærið enn og aftur til að koma þeim boðskap á framfæri að það skiptir í raun engu máli hvort bíll er 100 hestöfl eða 600 ef maður vanmetur aðstæður og bílinn og ofmetur eigin getu. Þá verða mistökin og þau oft ekki aftur tekin.
Dæmi úr fréttum vikunnar um þetta er þegar heil bílalest tekur fram úr sjúkrabíl sem er í forgangsakstri og tveir fara út af. Þar einfaldlega vanmeta menn aðstæður og bílana sína og ofmeta eigin getu. Það er blanda sem getur verið lífshættuleg fyrir þá og aðra.
Það má lesa meira um þetta á blogginu mínu:
http://egill.blog.is/blog/egill/
Ökum varlega og beislum kraftinn af ábyrgð.