Car chase in Iceland

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby jonthor » Tue 27. Feb 2007 17:29

arnibjorn wrote:
Stupid fuck!


Ekki flóknara!
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby basten » Fri 02. Mar 2007 20:22

bjahja wrote:Löggan átti aldrei að elta hann svona, skapaði miklu MIKLU meiri hættu.
Síðan er löggan hérna á Íslandi greinilega ekki best í heimi að gera read block.

En þetta er magnað myndband engu að síður


Það bara gengur ekki að láta menn sleppa ef þeir keyra nógu hratt eða hættulega. Það myndi þýða að miklu fleiri reyndu að stinga lögregluna af vitandi að hún hættir ef þeir keyra nógu brjálæðislega.

Það eru ÞEIR sem taka þessa ákvörðun að aka svona, ekki lögreglan.
Lögreglan á að hafa Zero-Tolerance gagnvart þessu og beita öllum brögðum til að stöðva svona menn.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby HPH » Fri 02. Mar 2007 20:27

Löggan á Bara kaupa 2sæta þyrlu og elta bílinn og vera með LIVE útsendingu á RUV :cop: :lol: þetta er samt ekkert svo vitlaust fyrir utan hvað það er dýrt.
*edit* vera bara með eina svona http://members.aol.com/UH1C6/N8185j-1.jpg
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby bjahja » Fri 02. Mar 2007 20:36

basten wrote:
bjahja wrote:Löggan átti aldrei að elta hann svona, skapaði miklu MIKLU meiri hættu.
Síðan er löggan hérna á Íslandi greinilega ekki best í heimi að gera read block.

En þetta er magnað myndband engu að síður


Það bara gengur ekki að láta menn sleppa ef þeir keyra nógu hratt eða hættulega. Það myndi þýða að miklu fleiri reyndu að stinga lögregluna af vitandi að hún hættir ef þeir keyra nógu brjálæðislega.

Það eru ÞEIR sem taka þessa ákvörðun að aka svona, ekki lögreglan.
Lögreglan á að hafa Zero-Tolerance gagnvart þessu og beita öllum brögðum til að stöðva svona menn.


Kommon, þeir reyndu að snúa bílnum á hvað 60-70 km/h í 30 götu. Mér finnst þetta fáránlegt og skapaði ótrúlega mikla hættu.
Sérð líka hvernig þetta endaði, hvað ef það hefðu verið tveir 6 ára krakkar í strætó skýlinu.
Hefði það verið þessu virði, bara til að ná þessum gaur.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby basten » Fri 02. Mar 2007 20:41

Auðvitað má alltaf deila um aðferðirnar en mér finnst bara að lögreglan eigi ALDREI að hætta að elta menn. Það gefur slæmt fordæmi sem spyrst hratt út.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Beggi » Fri 02. Mar 2007 20:54

mjög barnalegt og þröngsýnt að finnast að löggan eigi aldrei að hætta elta það er etthvað sem að verður bara að skoða hvert mál fyrir sig. Og það eru nú til mörg dæmi um það að löggan hafi hætt að elta vegna hættu. Hugsa nú þó ég viti það ekki að þeir hafi verið að reyna ná þessum út af enhverju öðru en umferðarlagabroti en já þetta þykir mér afar ílla að verki staðið og eins og bent var á hvað ef það hefði verið fólk í strætoskylunum og ekki héldu þeir hann myndi stoppa eftir allt þetta ef að þeir myndu loka annarri akrein wtf. er ekki í lag.....
E500 05
ZX6R 07
Beggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 258
Joined: Tue 11. Mar 2003 15:09
Location: Reykjavík

Postby Vargur » Fri 02. Mar 2007 21:10

Þetta er vægast sagt klaufalegt hjá þeim og furðulegt að þeir reyni að keyra utan í bílinn í íbúðargötu og að sjálfsögðu gefur kappinn í og endar svo aftan á bíl.
Ökumaður þeirrar bifreiðar slasaðist allnokkuð og hefur gagnrýnt lögreglu mikið í kjölfarið.
Mér sýnist reyndar á öllu að ökumaður lögreglubílsins sé afspyrnu slakur í akstri bifreiða.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby íbbi_ » Fri 02. Mar 2007 21:39

það er mjög auðvelt að dæma sem áhorfandi....
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Vargur » Fri 02. Mar 2007 21:51

Já það er mjög auðvelt...sérstaklega þegar ökumaður pallbílsins keyrir tvíveigis nánast á bíl sem er að koma úr gagnstæðri átt, í gegnum eitt strætóskýli og endar svo með að stórslasa vegfaranda með aftanákeyrslu.
Það þarf engan snilling til að sjá að eitthvað hefði mátt vera öðruvísi í þessari aðgerð og óhætt að segja að mesta mildi er að ekki fór verr.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby ValliFudd » Fri 02. Mar 2007 21:59

Eins og íbbi sagði.. Það er mjög auðvelt að dæma sem áhorfandi..

"in the heat of the moment" er nú ekki auðvelt að dæma um svona hluti.. Held að það sé ekkert sniðugt að vera að ræða þetta mikið frekar..

EF þeir hefðu hætt að elta.. og gaurarnir hefðu stoppað og tekið sprettinn er ekkert víst að þeir hefðu fundist..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Schulii » Fri 02. Mar 2007 23:29

Ég get nú ímyndað mér gagnrýnist raddirnar ef það hefði spurst út að þeir hefðu hætt að elta einhvern sem væri búinn að sýna svona vítaverðan akstur!
Og að segja að lögreglumaðurinn virðist ekkert vera góður ökumaður :roll:
Hann getur ekki vaðið yfir stöðvunarskyldu án þess að líta til vinstri eins og drullusokkurinn gerði. Þó að aðrir séu kannski ekki sammála þá þurfa þeir að sýna EXTRA mikla varkárni!

Það þarf eflaust mikla reynslu til að geta metið og ákveðið hvað sé rétt að gera og hvað ekki í svona eltingarleik og ég hugsa að íslenskir lögreglumenn séu bara ekki með mikla reynslu miðað við starfsbræður þeirra í flestum öðrum löndum en ég er sannfærður um að þeir séu nokkuð hæfir samt.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Svíþjóð. » Sat 03. Mar 2007 00:16

Mér finnst einmitt að þær gagnrýnisraddir á akstur/aðgerðir lögreglunnar séu tja..... mjálm.

Sem betur fer eru okkar "ástkæru" lögreglumenn ekki betur þjálfaðir í einmitt svona aðgerðum.
Tel ég það koma til af sama skorti og við grátum m.a. á þessu spjallborði.
Þ.e. skort á æfingasvæði/braut, sem nýst gæti bæði yfirvöldum OG ökuþórum sem áhugasamir eru um hraðan akstur(löglegann)

Mér finnst að þeir (polisen) hafi einmitt staðið sig nokk vel í þessu tilfelli a.m.k. miðað við það sem ég sá, þeir pressuðu hvorki á hann of duglega (sem hefði leitt til meiri hraða) né að virtust tóku of mikla óþarfa áhættu.

Spurningin er , tel ég, hvert viðkomandi hefði ekið svo eftir þennan eltingaleik ef þeir hefðu látið hann fara sína leið.
Hefði hann stundað þar vargætinn akstur og hefðu skilaboðin útávið verið "heppileg".(fram hefur komið að viðkomandi var "góðkunningi" )


Við þessar götur sem keyrt var um VEIT ég að börn leika, ég lék þar sjálfur og þekki til barna sem krossa þennann veg (í fleirtölu þó) oft.
Ég nenni ómögulega að horfa upp á barn sem stendur mér nærri að vera niðurkeyrt af einhverjum sem er í þessum klassa, né nokkrum öðrum...

"Zero tolerance",, gott mál, stöðva svona moðerfokkera á fyrstu metrunum. Og refsa þeim svo á viðunandi hátt(ekki endilega viðeigandi), þeir hættu lífi margra, ganga þannig að þeim að lífi þeirra sé hætta búin einnig.....
--Óþokki--

---T5R T-GUL---

---Heja Sverige---
User avatar
Svíþjóð.
Kassabílstjóri
 
Posts: 217
Joined: Fri 31. Mar 2006 12:49
Location: Eflaust eitthvað að skrúfa, skítugur...

Postby IceDev » Sat 03. Mar 2007 01:31

Það var líka magnað hvað gaurinn er snjall

Að stunda glæfraakstur hundruði metra frá löggustöð þykir ekki sniðugt sérstaklega ekki ef að maður sé búinn að fara þar fram hjá einusinni :lol:
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Postby Misdo » Sat 03. Mar 2007 02:26

Thrullerinn wrote:Hvað sumir eru ruglaðir :shock: hef nú samt lúmskan grun um að löggunni finnist
þetta ekki neitt sérlega leiðinlegur hluti af starfinu.


alveg pott þétt ekki
Stefán Haukur
VW Golf MKV Gti
VW Golf MK4 seldur
BMW E36 323i Seldur
Honda Civic Seldur
BMW 318ia E36 rifinn
You'll Never Walk Alone
User avatar
Misdo
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1586
Joined: Thu 23. Nov 2006 22:36

Postby ice5339 » Sun 04. Mar 2007 09:41

Það er nú alltaf auðvelt að vera vitur þegar maður horfir á svona á bandi, en ég held að það hafi örugglega verið lúmskt erfitt að vera í sporum þeirra sem þarna voru að vinnu.

Varðandi hvort það eigi að elta svona fólk eða ekki, er örugglega gríðarlega erfið ákvörðun. Hvernig er hægt að réttlæta það að leyfa honum að sleppa ef hann er kannski piss fullur eða dópaður og keyrir kannski á barn í næsta hverfi, hann verður ekkert betri bílstjóri þótt löggan sé ekki fyrir aftan hann.

Nokkur scenario:
-Etirför er hætt, hann lendir í árekstri, lögregla gagnrýnd fyrir að hætta eftirför og stöðva hann ekki með ákeyrslu.
-eftirför hætt maðurinn hættir akstri og ekkert meir.
-eftirför er haldið áfram maðurinn veldur slysi, lögregla gagnrýnd fyrir að hætta ekki eftirför.
-Lögregla stöðvar bílinn með valdi, maðurinn slasast, lögregla gagnrýnd fyrir að stöðva bílinn með þeim hætti .
-Lögregla nýtir ekki tækifæri til þess að stöðva manninn með valdi, maðurinn veldur slysi í eftirförinni, lögregla gagnrýnd fyrir að keyra ekki á hann.

Þetta virðist vera nánast no-win situation sama hvað er gert.
Not everybody uses a Macintosh, but not everybody drives a BMW either!!!!
User avatar
ice5339
Kassabílstjóri
 
Posts: 176
Joined: Sat 05. Nov 2005 16:38
Location: Stór-Kópavogssvæðið

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 38 guests