Mín reynsla af frönskum bílum er þokkaleg, hef átt einn slíkan (eins og kemur fram að ofan) ásamt því að keyra þónokkra og mér hefur yfirleitt þótt þetta fínir akstursbílar sem er gott að ganga um. Alls ekki gallalausir bílar, langt í frá, en það er algjör óþarfi að spila sig sem einhvern svaka BMW töffara og segja að allir franskir bílar séu ógeð og ég veit ekki hvað en hafa svo t.d. bara keyrt 10ára gamlan Kangoo og heyra frá ömmu frænda vinar manns að saxoinn hennar hafi bilað.
Einnig að segja að nýr franskur bíll sé algjör viðbjóður og halda svo ekki vatni yfir 20ára bmw búðing sem þarf að klappa lágmark einu sinni í mánuði þykir mér ansi undarlegt
IvanAnders wrote:
Hef -að sjálfsögðu- ekki átt franskan bíl!
Betra að keyra renault en marga aðra bíla, en bilanatíðnin er útí hött, og samt hanna þeir bílana sína þannig að það er "erfitt" að þjónusta þá (eðlileg þjónusta) og skelfilegt að gera við þá!
ef við tökum eitt LÍTIÐ dæmi....
Renault modus er "aygo-inn" þeirra, lítil sparneytin vísitölutík...
Það þarf að taka framstuðarann AF og framljósin úr til að skipta út einni af 8 perum sem sitja í framljóskerunum á þessum DRUSLUM!!!
Main point being: hef unnið við að þjónusta og gera við bíla í c.a. 5 ár og franskir bílar bera af í bilunum og leiðindum við viðgerðir/þjónustu

Þetta eru engin rök, þetta hefur verið svona í Toyota í mörg ár. Fólk m.a.s. er sent í umboðið ef það fer stöðuljósapera....