Er heillinn í öllum hérna á spjallinu frosnaður??

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Daníel » Thu 11. Jan 2007 11:25

Heyr heyr, Sæmi. Það virkrr ferlega letjandi á mann að lesa í sífellu spjall þar sem menn geta með engu móti tjáð sig svo skiljandi sé.


IceDev wrote:...þá er eitt sem fer enn meira í mínar taugar og það er þegar að fólk segir "víst" í stað "fyrst"

T.d

"Fyrst þetta á að vera svona..."

í

"Víst þetta á að vera svona..."



Þetta er nokkuð sem tilheyrir norðlenskum talsmáta, stingur svolítið í augu en margir sem ég þekki fyrir norðan nota þetta. Hvort þetta telst rangt mál eður ei veit ég ekki.
Danni
Mercedes Benz Viano 2.2cdi 2003 "Langferðabíllinn"
Audi A6 1.8 1999 "garmurinn"
Enginn BMW
User avatar
Daníel
Getawaybílstjóri
 
Posts: 795
Joined: Fri 23. Sep 2005 14:08
Location: Höfuðborgarsvæðið

Postby íbbi_ » Thu 11. Jan 2007 11:42

ég pikka yfirleitt svo hratt inn að að ég er búin að ýta á enter og farin að skoða næsta þráð áður en ég veit af og löngu hættur að spá í hvað ég skrifaði,

ég hinsvegar geri það nú dáldið að gamni mínu að skrifa eins og lítil smápjalla og nota orð eins og náttla, einla, eikkað, og skom í staðin fyrir sko :lol: og frasa eins og "þúrt brahh nottla einla iggað klikk skom!"

hinsvegar er alveg furðulegt.. hvað margir og þá sérstaklega margar, tala sona
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Svezel » Thu 11. Jan 2007 11:52

ég þoleh ekkeh þegar fólk skrefar vetlaust
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Bjarkih » Thu 11. Jan 2007 11:59

KLyX wrote:Heyr heyr, Sæmi. Það virkrr ferlega letjandi á mann að lesa í sífellu spjall þar sem menn geta með engu móti tjáð sig svo skiljandi sé.


IceDev wrote:...þá er eitt sem fer enn meira í mínar taugar og það er þegar að fólk segir "víst" í stað "fyrst"

T.d

"Fyrst þetta á að vera svona..."

í

"Víst þetta á að vera svona..."



Þetta er nokkuð sem tilheyrir norðlenskum talsmáta, stingur svolítið í augu en margir sem ég þekki fyrir norðan nota þetta. Hvort þetta telst rangt mál eður ei veit ég ekki.


Ég er nú að norðan og kannast ekki við þetta. Svo var það nú þannig og er kannski enn að t.d. unglingar af höfuðborgarsvæðinu töluðu svo vitlaust að það var alveg hryllingur að hlusta á! Hinsvegar er ég að lenda í því að ég á orðið erfiðara með að átta mig á hvernig stafsetja á viss orð, aðalega þá varðandi y og i, vegna þess að nú bý ég í útlöndum og þessi spjallborð eru 90% af þeirri íslensku sem ég les og ekki get ég treyst á þau til viðmiðunar :wink: Maður ryðgar hratt í þeim hlutum sem maður ekki notar.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby ///M » Thu 11. Jan 2007 12:01

KLyX wrote:Heyr heyr, Sæmi. Það virkrr ferlega letjandi á mann að lesa í sífellu spjall þar sem menn geta með engu móti tjáð sig svo skiljandi sé.


IceDev wrote:...þá er eitt sem fer enn meira í mínar taugar og það er þegar að fólk segir "víst" í stað "fyrst"

T.d

"Fyrst þetta á að vera svona..."

í

"Víst þetta á að vera svona..."



Þetta er nokkuð sem tilheyrir norðlenskum talsmáta, stingur svolítið í augu en margir sem ég þekki fyrir norðan nota þetta. Hvort þetta telst rangt mál eður ei veit ég ekki.


Þetta kemur langt mest frá þeim sem búa í Keflavík og þar í kring ,,,allavegana hérna á þessu spjallborði...
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby Aron Fridrik » Thu 11. Jan 2007 12:04

ég skrifa nú ekki bjagað (að ég tel) og myndi fá kjánahroll ef ég myndi nota eikker í staðinn fyrir einhver..
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby bjahja » Thu 11. Jan 2007 12:13

Góður póstur sæmi :clap:

Síðan er annað sem fer í taugarnar á mér, það er eitthvað og einhver ruglingurinn. Þegar fólk skrifar Einhvað og eitthver, það er mjög spes :lol:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Saxi » Thu 11. Jan 2007 12:41

Svezel wrote:ég þoleh ekkeh þegar fólk skrefar vetlaust


En það er bara fendeð að skrefa flámælt :)

Saxi
Saxi
Saxi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 865
Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Location: Höfuðstaðurinn

Postby Doror » Thu 11. Jan 2007 12:42

Vá ég var að hugsa um að gera svona þráð í gær.. Þó er þetta mun betra hérna en annars staðar.
Versta sem ég sé hins vegar er þegar menn skrifa sjálfskiFting og að skifta um gír!! Það er skiptinga og skipta... Muna bara: Það er skip í skiptingu.
BMW 320 E90 2006
Jeep Grand Cherokee 38" 5.9
BMW 323 E36 - Seldur
BMW 320I E36 - Seldur
BMW 330 SMG - Seldur
User avatar
Doror
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 436
Joined: Wed 20. Sep 2006 08:47

Postby gunnar » Thu 11. Jan 2007 12:46

Doror wrote:Vá ég var að hugsa um að gera svona þráð í gær.. Þó er þetta mun betra hérna en annars staðar.
Versta sem ég sé hins vegar er þegar menn skrifa sjálfskiFting og að skifta um gír!! Það er skiptinga og skipta... Muna bara: Það er skip í skiptingu.


Maður hefur nú séð það verra.

Ég vinn á vinnustað þar sem eru bara iðnaðarmenn og þeir eru nátturulega ekki gáfaðir menn upp til hópa. Fæ iðulega anskoti margar villur á textum frá þeim.

ryð = rið
reikja
myllistikki og svo fleira og fleira og fleira :?

Líka helvíti gaman að segja frá því, ég fór í FerróZink, lítil málmfyrirtæki hérna í hafnarfirði, og reikningurinn frá þeim var svo vitlaus að ég skellti uppúr. Í "skilmálunum" aftan á reikningnum voru 15 villur. Og það aðeins í einum 5 eða 6 málsgreinum. Og alls kyns málfarsvillur og fleira. Viktun. td, gleymdu bara stöfum inn á milli og fleira.

Ég minntist á þetta við afgreiðslumanninn og hann varð alveg brjálaður, býst fastlega við því að hann hafi greinilega skrifað þetta sjálfur.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby BMWaff » Thu 11. Jan 2007 12:48

Mér er alveg sama hvernig ég skrifa hérna... Sé enga ástæðu til að reyna að skrifa eitthvað hægar og svo að leiðrétta þetta... Þetta er nú bara spjall ekki grein í tímariti...

Ég skil heldur ekki fólk sem hefur ekkert annað að gera en að la´ta svona fara í taugarnar á sér... Finnst það álíka asnalegt og ef þú værir að láta starfsfélaga fara í taugarnar á þér af því að hann er í rauðum bol...

En það sem ég veit að háir mér mest í þessu er helvítis SMS-in... Mar hefur í gegnum tíðina reynt að stytta orð til að þurfa að skrifa minna og þá búið til allskonar orð til...

Eini staðurinn sem ég reyni að passa stafsettningu er eitthvað sem tengist vinnu...
Núið:
BMW 730d '04
BMWaff
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1121
Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Location: Rvk

Postby JOGA » Thu 11. Jan 2007 12:50

Gott að fólki er umhugað um okkar fornfræga tungumál :)

Ég er mjög sammála en verð nú samt að koma því áleiðis að þetta spjallborð er nokkuð vel sett í þessum málum þó auðvitað komi upp dæmi um annað inn á milli.

Ég verð reyndar að viðurkenna að ég er allt of duglegur við að slá vitlaust á lyklaborðið. Fer oft aðeins á undan mér.

En ég reyni að leiðrétta það um leið og ég sé villur :wink:
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby fart » Thu 11. Jan 2007 12:53

Þörf ábending.

Ég pirrast oft yfir sjálfum mér. Ég skrifa of oft slettur og frasa, geri endalaust af innsláttarvillum og þessháttar.

Nýverið hef ég tekið upp þá reglu að lesa vel yfir pósta frá sjálfum mér og leiðrétta augljósar villur.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Logi » Thu 11. Jan 2007 13:08

Þetta eru þarfar ábendingar. Ég get bara ekki tekið þá alvarlega sem skrifa vitlaust! Dæmi þá ósjálfrátt sem vitleysinga :?
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Haffi » Thu 11. Jan 2007 13:18

:oops: :oops: :oops:
Ég held mig við þessa félaga svo maður verði ekki skotinn í kaf!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests