Doror wrote:Vá ég var að hugsa um að gera svona þráð í gær.. Þó er þetta mun betra hérna en annars staðar.
Versta sem ég sé hins vegar er þegar menn skrifa sjálfskiFting og að skifta um gír!! Það er skiptinga og skipta... Muna bara: Það er skip í skiptingu.
Maður hefur nú séð það verra.
Ég vinn á vinnustað þar sem eru bara iðnaðarmenn og þeir eru nátturulega ekki gáfaðir menn upp til hópa. Fæ iðulega anskoti margar villur á textum frá þeim.
ryð = rið
reikja
myllistikki og svo fleira og fleira og fleira
Líka helvíti gaman að segja frá því, ég fór í FerróZink, lítil málmfyrirtæki hérna í hafnarfirði, og reikningurinn frá þeim var svo vitlaus að ég skellti uppúr. Í "skilmálunum" aftan á reikningnum voru 15 villur. Og það aðeins í einum 5 eða 6 málsgreinum. Og alls kyns málfarsvillur og fleira. Viktun. td, gleymdu bara stöfum inn á milli og fleira.
Ég minntist á þetta við afgreiðslumanninn og hann varð alveg brjálaður, býst fastlega við því að hann hafi greinilega skrifað þetta sjálfur.