Nýi Ásinn prófaður

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Svezel » Fri 08. Oct 2004 15:59

Ég vil meina að praktík sé eitthvað ofan á brauð :mrgreen:

En tilhugsunin um verðið á ásnum með þeim aukabúnaði sem maður vill skelfir mig dálítið :pale:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Jökull » Fri 08. Oct 2004 16:33

ég prófaði 120i í dag þennann eina sem kominn er, var mjög ánægður með hann fínn kraftur og liggur vel, nema það vantar allt í hann og ef maður vill fá eitthvað auka þá kostar það svaka slatta á víst að vera auðvelt að koma þeim uppí ca 4 millj :shock:
BMW 325XI E46 '02
BMW X5 E53 '02
User avatar
Jökull
Getawaybílstjóri
 
Posts: 965
Joined: Wed 11. Jun 2003 12:33

Postby ///Matti » Fri 08. Oct 2004 18:19

Og svo að ég segji fyrir mína hönd, þá finnst mér Compact bílarnir vera frekar lummó og skil ekki enn hvers vegna þeir þurftu að fara útí þá sálma
[-( :cry: :cry: :cry: :cry:
00 E39 540 M-tech (seldur)
94 E36 M3 Cabrio (seldur)
User avatar
///Matti
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1344
Joined: Fri 17. Oct 2003 18:54
Location: myrk og mannaskít

Postby Nökkvi » Tue 12. Oct 2004 19:05

Ritstjóri Auto, Motor und Sport tók einmitt fyrir verðið á ásnum og aukahlutunum sem maður vill fá. Grunnverðið úti í Þýskalandi er 19.800 EUR og hann kallar það gylliboð.

Fyrir 19.800 EUR fær maður 116i. Til að geta notið afturdrifsins eitthvað þarf maður meiri kraft og þá liggur beinast við að panta sér 120d. Það eru 4.600 EUR í viðbót.

Í Þýskalandi eru flestir nýjir bílar í dag með Navigation. Til þess að panta það í ásinn úti þarf að panta ýmislegt annað með s.s. sjálfvirka loftkælingu, aðgerðarstýri og armpúða. Þessi pakki kostar 4.470 EUR.

Ef manni nægir ekki hvítur eða rauður ás verður maður að kaupa metallic lakk sem kostar 620 EUR. Svo keyrir enginn um á stálfelgum svo álfelgur verður maður að panta sér, 17" fyrir 1250 EUR.

Samtals gera þetta 30.740 EUR!!! Fyrir minna verð en þetta er hægt að fá grunngerðina af 320i og þá er maður kominn með stærri bíl og 6 cyl.

Ásinn er samt langt því í frá að vera "fullbúinn". Nefnum sem dæmi að maður vilji leðurinnréttingu, "Professional" útvarp og sjálfskiptingu. Samtals eru þessir þrír aukahlutir 4.820 EUR.

Verðið er þá komið í 35.560 EUR. Þetta er örlítið meira en grunngerðin af 520i kostar úti.

Í þessu verði er ekki búnaður s.s. sóllúga (950 EUR), þokuljós (200 EUR) eða Xenon ljós (790 EUR). Ef maður pantar allt sem í boði er er auðvelt að komast yfir 50.000 EUR og það fyrir smábíl.
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Postby bebecar » Tue 12. Oct 2004 19:33

Nökkvi wrote:Ritstjóri Auto, Motor und Sport tók einmitt fyrir verðið á ásnum og aukahlutunum sem maður vill fá. Grunnverðið úti í Þýskalandi er 19.800 EUR og hann kallar það gylliboð.

Fyrir 19.800 EUR fær maður 116i. Til að geta notið afturdrifsins eitthvað þarf maður meiri kraft og þá liggur beinast við að panta sér 120d. Það eru 4.600 EUR í viðbót.

Í Þýskalandi eru flestir nýjir bílar í dag með Navigation. Til þess að panta það í ásinn úti þarf að panta ýmislegt annað með s.s. sjálfvirka loftkælingu, aðgerðarstýri og armpúða. Þessi pakki kostar 4.470 EUR.

Ef manni nægir ekki hvítur eða rauður ás verður maður að kaupa metallic lakk sem kostar 620 EUR. Svo keyrir enginn um á stálfelgum svo álfelgur verður maður að panta sér, 17" fyrir 1250 EUR.

Samtals gera þetta 30.740 EUR!!! Fyrir minna verð en þetta er hægt að fá grunngerðina af 320i og þá er maður kominn með stærri bíl og 6 cyl.

Ásinn er samt langt því í frá að vera "fullbúinn". Nefnum sem dæmi að maður vilji leðurinnréttingu, "Professional" útvarp og sjálfskiptingu. Samtals eru þessir þrír aukahlutir 4.820 EUR.

Verðið er þá komið í 35.560 EUR. Þetta er örlítið meira en grunngerðin af 520i kostar úti.

Í þessu verði er ekki búnaður s.s. sóllúga (950 EUR), þokuljós (200 EUR) eða Xenon ljós (790 EUR). Ef maður pantar allt sem í boði er er auðvelt að komast yfir 50.000 EUR og það fyrir smábíl.


:lol: Hvernig getur þetta passað??? Er svona rosalega mikið lagt í þróunarvinnu ássins... ég ætla ekki einu sinni að byrja að telja upp hvaða notuðu bimma er hægt að fá fyrir 30 þús evrur :roll:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Svezel » Tue 12. Oct 2004 20:01

Nökkvi wrote:Ritstjóri Auto, Motor und Sport tók einmitt fyrir verðið á ásnum og aukahlutunum sem maður vill fá. Grunnverðið úti í Þýskalandi er 19.800 EUR og hann kallar það gylliboð.

Fyrir 19.800 EUR fær maður 116i. Til að geta notið afturdrifsins eitthvað þarf maður meiri kraft og þá liggur beinast við að panta sér 120d. Það eru 4.600 EUR í viðbót.

Í Þýskalandi eru flestir nýjir bílar í dag með Navigation. Til þess að panta það í ásinn úti þarf að panta ýmislegt annað með s.s. sjálfvirka loftkælingu, aðgerðarstýri og armpúða. Þessi pakki kostar 4.470 EUR.

Ef manni nægir ekki hvítur eða rauður ás verður maður að kaupa metallic lakk sem kostar 620 EUR. Svo keyrir enginn um á stálfelgum svo álfelgur verður maður að panta sér, 17" fyrir 1250 EUR.

Samtals gera þetta 30.740 EUR!!! Fyrir minna verð en þetta er hægt að fá grunngerðina af 320i og þá er maður kominn með stærri bíl og 6 cyl.

Ásinn er samt langt því í frá að vera "fullbúinn". Nefnum sem dæmi að maður vilji leðurinnréttingu, "Professional" útvarp og sjálfskiptingu. Samtals eru þessir þrír aukahlutir 4.820 EUR.

Verðið er þá komið í 35.560 EUR. Þetta er örlítið meira en grunngerðin af 520i kostar úti.

Í þessu verði er ekki búnaður s.s. sóllúga (950 EUR), þokuljós (200 EUR) eða Xenon ljós (790 EUR). Ef maður pantar allt sem í boði er er auðvelt að komast yfir 50.000 EUR og það fyrir smábíl.


Úff :shock:

Ég segi nú bara eins og bebecar: Ég get fundið margt annað meira spennandi fyrir þennan pening :?
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby jth » Tue 12. Oct 2004 20:13

Nökkvi wrote:Í þessu verði er ekki búnaður s.s. sóllúga (950 EUR), þokuljós (200 EUR) eða Xenon ljós (790 EUR). Ef maður pantar allt sem í boði er er auðvelt að komast yfir 50.000 EUR og það fyrir smábíl.


Þetta er rosalegt, að það skuli vera hægt að bæta við 30k evrum við grunnverðið til að fá vel búinn ás! :shock:

Ég ætlaði mér að færa rök fyrir því að í öðrum línum BMW væri hægt að sjá svipaðar hlutfallslegar breytingar, t.d. 316i vs. fullbúinn 330i (3m -> ca 6m+) - en þau rök ganga hreinlega ekki upp. Í öllum öðrum línum er bilið milli neðstu útgáfu og dýrustu mikið meiri en sem nemur muni á 116i og 120d.

Er málið ekki bara það að aukahlutirnir í 1-línunni kosta jafnmikið og aukahlutir í stærri línunum - ekki hlutfallslega jafn mikið?

En talandi um verð á aukahlutum - m.v. vörugjaldsflokkana hef ég aldrei skilið hvernig verð á aukabúnaði er réttlætt (m.t.t. vörugjalds ). Leðursæti, Xenon ljós eða hvað sem er kosta jafn mikið í 1999cc bíl og í 3000cc lítra bíl.
Þar sem vörugjaldið er 15% hærra á "stærri" bílnum eru allir aukahlutir hans dýrari sem því nemur - vörugjald sem lagt er á þá í "stærri" bílnum er hærra en í "minni".

Eru aukahlutir á "minni" bílum þá að greiða niður aukahlutina á "stærri" bílunum - eða eru aukahlutirnir á minni bílunum ofrukkaðir (alltaf er rukkað f.aukahluti m.v. dýrari flokkinn)? :?:
Jóhannes
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby Dr. E31 » Tue 12. Oct 2004 22:15

Svezel wrote:Ég vil meina að praktík sé eitthvað ofan á brauð :mrgreen:

En tilhugsunin um verðið á ásnum með þeim aukabúnaði sem maður vill skelfir mig dálítið :pale:


Úje, sammála. 8)
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby Lindemann » Tue 12. Oct 2004 23:37

ef maður ætlar að vera með einhverja praktík og hugsa endalaust um aurana, þá fær maður sér ekki bíl, þá tekur maður strætó!
8)

borgar sig ekki að spara í bílum, tilhvers eru peningar ef maður eyðir þeim ekki í bíla :?: :)

svo er annað mál með útbúnað á ásnum, en ef ég væri að fá mér svona bíl þá væri eitt af því fáa sem ég fengi mér nýjar felgur, fínt að hafa þetta svolítið hardcore 8)
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby hlynurst » Tue 12. Oct 2004 23:47

Held að spurningin hafi verið hvort að maður ætti að fá sér.:

Ás vs. M5

Eða einhvern annan meira spennandi BMW sem kostar 30.000 evrur. :)
Ég veit allavega hvað ég myndi velja. :roll:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Jón Þór » Wed 13. Oct 2004 11:38

búinn að prófa ásinn þegar b&l var að fá hann og fynst hann djöfull skemmtilegur en ef þú villt fá ás eins og með leðri og lúgu og xenon og öllu því þá er hann kominn í 4 milljónir.
Með vinsemd og virðingu.

Jón Þór Eggertsson
jon_thor_e@hotmail.com
(+354) 692 6161
(+354) 587 9716
Renault Megane RS 225 2006
Kawasaki KXF 250 2006
BMW 1-Línan 2005
VW Golf 2000
User avatar
Jón Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Wed 30. Jul 2003 09:47
Location: Reykjaík

Postby Svezel » Wed 13. Oct 2004 16:16

Ég sá umfjöllun um ásinn í nýjasta þætti af Fifth gear og þar vildi sá er reynsluók meina að ásinn væri í raun ekki í flokki með neinum öðrum bíl á markaðnum nema þá e.t.v. A3. Hann vildi meina að ride og build quality bæri höfuð og herðar yfir alla aðra bíla í svipuðum flokki og því engin samkeppni á ferð.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Jökull » Wed 13. Oct 2004 19:53

PS2-Golf wrote:búinn að prófa ásinn þegar b&l var að fá hann og fynst hann djöfull skemmtilegur en ef þú villt fá ás eins og með leðri og lúgu og xenon og öllu því þá er hann kominn í 4 milljónir.


120i bíllin sem er núna uppi sal hjá b&l er með öllu held ég nema xenon og bakkskinjurum og hann á að kosta 4,3millj :shock: ,en þetta er samt "BMW" 8)
BMW 325XI E46 '02
BMW X5 E53 '02
User avatar
Jökull
Getawaybílstjóri
 
Posts: 965
Joined: Wed 11. Jun 2003 12:33

Postby O.Johnson » Wed 13. Oct 2004 20:15

Reindar eru fleiri en 1 ás
Það eru þrír
120i Grár
118i Svartur
116i Rauður
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby Jökull » Wed 13. Oct 2004 20:42

ég veit var að tala um 120i bílinn sem er í salnum. Og þetta eru 2 116i sem eru þarna, það eru 2 120i komnir búinn að prófa þá báða annar er fyrir reynsluakstur svo er annar 116i á leyðinni í salinn fyrir helgina :)
BMW 325XI E46 '02
BMW X5 E53 '02
User avatar
Jökull
Getawaybílstjóri
 
Posts: 965
Joined: Wed 11. Jun 2003 12:33

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests