Spiderman wrote:
Þröstur láttu slag standa

Þetta er geggjað að mínu mati. Þetta kemur ótrúlega vel út og það er gaman að eiga hardtop.
Kostirnir eru fjölmargir
1) Annað lúkk á bílnum, blæja, hardtop og blæja niðri, færð aldrei leið á bílnum, breytir bara lúkkinu og þú ert kominn á nýjan bíl
2) Hljóð, kostur þegar ekið er út á landi, bíllinn verður allur þéttari og gott yfir vetrarmánuðina.
3) Miklu skemmtilegra að slæda með toppinn á en blæjuna, eftir því sem hringirnir verða fleiri þá brakar í blæjunni á mínum, ef ég er með toppinn á þá virkar bíllinn miklu stöðugri.
Bíllinn er reyndar það stífur að ég held að toppurinn geri lítinn mun á
akstri. Ég held að þetta sé málið, ég ætla bara að sjá til úti í sumar, sem
vonandi rætist. Persónulega finnst mér í lagi að kaupa þetta þar sem
mér langar til að eiga bílinn um ókomin ár.
Eina málið er að ég nota hann ekki yfir vetrarmánuðina, ég efast um að
ég geri það einhvern tímann, etv. verður maður ekki eins taugaveiklaður
yfir þessu eftir einhver ár. En í dag dytti mér ekki í hug að fara út í þessa
drullu á honum. Hann er bara stífbónaður og fínn inn í bílskúr
En það er rétt hjá þér að bíllinn breytist gríðarlega við að hafa toppinn !!
Hefur einhver pantað svona hluti úti ??
Sæmi ert þú ekki alltaf að fljúga þarna út ? Ég þekki fólk í Lúx sem getur
líklega sótt hann fyrir mig..