Jæja!
Kominn tími til að minna aðeins aftur á þennan eðalvagn!
Það hefur svosem ekki mikið breyst á bílnum sjálfum, reyndar kominn á
15" Ronal Felgurnar og sæmileg dekk komin undir!
Það breytist ekkert smávegis aksturstilfinningin í honum við að fara á 15",
en lægri prófíll myndi þó gera gæfumun ofan á það!
Til þess að þetta sé ekki
hreinasti "TTT"-póstur er nauðsynlegt að
skella inn myndum af blingaranum í óviðeigandi og krassandi aðstæðum!
Hvað er betra en skíðasvæðið?
Við Óskar skruppum um daginn í ágætis kulda uppí bláfjöll til að njóta ferska loftsins sem maður fær einungis upplifað í blæjubíl (og sennilega mótorhjóli!)
Það fá því engin orð lýst hvað það er geðveikt skemmtilegt að blasta um
á opnum vegi á opnum bíl!
Allavega, núna er tíminn til að versla sér blæjubíl, ef einhver hefur
efasemdir um það, en hefur alvarlegan áhuga, er minnsta mál að sanna
það með góðum ísbíltúr þegar tími gefst.
Skoða auðvitað öll tilboð en ástæðan fyrir sölunni er að mig vantar peninga..
