Ég held að það sé nokkuð ljóst að þið eruð að miskillja bebecar. Hugmyndin er ekki sú að fá 318 úr pappakassa með einu plastsæti og stýri.
Málið er bara að í bílum í dag er ýmis búnaður sem maður hefur ekkert með að gera og búnaður sem maður þarf ekki er auka þyngd. Hver er t.d. tilgangurinn í rafdrifnum sætum, nuddi í sæti, svakalegri aksturstölvu, varadekki á álfelgu og mega soundsystemi í sportbíl. Svo maður geti ruggað sér í nuddi í rafmagnsæti, meðan maður kemst að því hvar er maður getur í seinasta lagi tekið bensín og hlustar á tónlist í botni auk þess jú að standa bílinn í spóli út beygju?
Aukaþyngd tekur t.d. alltaf frá manni hröðun. Prófið bara að fara upp á kvartmílubraut og taka run með bílinn fullan af rusli og bensíni en svo aftur með lítið bensín og ekkert rusl ásamt engu vardekki eða verkfæri. Í hvort skiptið tekur maður betri tíma?
Sem dæmi um hvað óþarfa dót tekur mikla þyngd þá vógu nú bara verkfærin og varadekkið í clionum mínum gamla 22kg. Þetta gefur bílnum auka 4hp/tonn. Ég held að hver sem er hérna inn myndi þiggja +4hö/tonn án nokkurs kostnaðar.
Það þýðir svo ekkert að segja svona að fara nýskitinn og rakaður á pungnum því það eru óháðar breytur í dæminu. Sami ökumaður myndi alltaf finna mun ef bíllinn hans væri léttari.


