Þá er þessi kominn aftur til mín. Ég dauðsá eftir honum eftir að ég seldi hann í ágúst 2017, sem ég gerði m.a. til þess að borga fyrir flugnám og kaupa mér íbúð.
Nú bauðst mér hann aftur, ég gat með einhverju móti skrapað saman fyrir honum, svo ég sló til.
Í þetta sinn vantar á hann listann á vinstra frambrettið, litla ryðgatið undir rafgeyminum í skottinu orðið aðeins stærra, og Vanos sennilega farið að þurfa rebuild. Hann kokar í >50% gjöf.
Sá sem keypti hann af mér (og seldi mér hann svo núna) var búinn að gera ýmislegt:
- Fór í heddpakkningu og tilheyrandi
- Allt nýtt í kælikerfi
- Allt nýtt í bremsum
- Allt nýtt í hjólabúnaði að framan
- Nýtt BC coilover kerfi (stillanlegt)
Planið er bara að lappa uppá hann, hækka örlítið að aftan til að jafna út hæðina, finnst skrýtið stance á honum eins og er.
Svo bara keyra og njóta. Leika sér með dótið sitt.
Hann auglýsti bílinn seinnipart miðvikudags, ég var mættur hálftíma seinna og búinn að kaupa hann kl 21 um kvöldið.
Svona stóð hann þegar ég skoðaði hann hjá honum:
Ryðið í skottinu aðeins orðið verra, en þetta er þó eina ryðið til að tala um í öllum bílnum. Sílsar, gólf og subframe festingar er allt í góðu lagi.
Kominn heim á ný, við hliðina á bróðir sínum.
Var ekki lengi að skrúfa staggered M3 felgurnar undir hann aftur, allt annað að sjá hann svona.