Þessi umræða kemur relgulega upp,, flestir eru hliðhollir því sem þeir eiga, hafa átt, eða hvað var cool á þeirra aldri.
Fyrir mér er í raun E60M5 ákveðið framhald af t.d. E34M5. Báðir frekar hardcore og race, og fyrir serious dellukalla.
F10M5 er síðan frekar arftaki E39M5. Báðir bílarnir eru hannaðir fyrir mass market appeal.
Þessi líking meikar kanski sens fyrir einhverja.
E60M5 var í raun of stórt skref fyrir flesta. Ofurbílaeinkenni þess bíls eru mörg, Mótor/eyðsla/gírkassi/looks o.sfrv., á meðan F10 (þrátt fyrir að vera sneggri en E60) skortir einbeitingu og er mýkri, líkt og E39 bæði í útliti og akstri. Flestir ókostir (ef það má kalla það ókosti) hafa verið straujaðir út í F10.
Gírkassinn er betri
Vélin togmeiri
Eyðslan minni
Útlitið hlutlausara
Mýkri akstur
Í staðin.. (og nú á Ingvar eftir að fíla mig) hefur mikið af karakter bílsins horfið. T.d. legendary vélarhljóð, en í stað þurfa menn að kveikja á útvarpinu til að fá race hljóð
Eins og í E34M5 er mótorinn í E60M5 að verða legendary. þrátt fyrir S62B50 skili meira afli en S38B38 og að S63B44Tü skili meira en S85B50 eru ansi margir á því að það dugi bara ekki til að vera "skemmtilegri" mótorar, og þá er oft talað um soundið.
Það fer eftir því hverju maður sækist eftir hvaða M5 er bestur.
E28 Rarity
E34 pedigree
E39 practicality
E60 Insanity
F10 .. á líklega eftir að koma í ljós