fór með honda atc þríhjólafelgur til kauða, þetta eru felgur frá 1987 og hann var að gorta sig á því að geta gert þetta 100% , felgurnar voru smá skakkar, þessar felgur eru þanning að maður getur umfelgað sjálfur, því þær eru teknar i sundur með boltum, miðjan fer i tvo hluta, var ekkert hopp i þeim og ég gat staflað þeim öllum saman oný hvor aðra þegar eg fór með þær til hans,
nei hvað haldið þið! þær voru óstaflanlegar utaf það var búið að berja svo mikið á þær með sleggju að þær voru farnar að springa, þetta eru álfelgur sem fóru svo i pólíhúðum, haf ALDREI séð ljótari "viðgerð" á felgum, þær eru gott sem ónytar, en það sem mér fannst leiðinlegast við þetta er að hann var 100% viss um að gera þetta 100%, ég hugsa að ég hefði getað gert þetta betur i skrúfstykki með gúmmísleggju, og btw ég borgaði vel á þriðja tug þúsunda fyrir ódæðið!! og tók 3 vikur að skemma felgurnar