Jæja, fór með M3 uppá pústverkstæði í morgunn. Komu hljóð undan honum eins og pústið væri laust (ath. hef ekkert verið að leika mér á honum). Kom svo í ljós að þetta voru ekki festingarnar, heldur var pústkerfið undir honum í rugli. Hljóðkúturinn beyglaður og með götum, allt í flækju og skakkt! Það var tekið allt í gegn og ég sótti hann um 5 leytið í dag. Allt annað! Miklu þægilegra og fallegra hljóð úr honum og ekkert bar í undirvagninn. Núna er ég ótrúlega ánægður!
Fékk svo smá sendingu í dag, replace fyrir glasahaldarana.


Var svo einnig að ná í glænýja kastara í bílinn þar sem einn var brotinn.


Langar svo að fá álit.
Ætla að kaupa mér ný afturljós, það eru led afturljós í þessum en vinstramegin er ljósið orðið rispað og fullt af led pernum farnar. Langar að kaupa ný. Clear eða Smoked? Hvað finnst ykkur?
Og fyrir þá sem vilja cupholders í bílinn þá eru þeir til sölu hjá mér, finnið bara þráðinn í "til sölu" grúppunni.
kv, Hreiðar