Fur suchmaschine: sexur, 645csi, 635csi, 633csi 628csi, 630csi
Nei, bíllinn sem var auglýstur á 100 kall er silfraður. Strákurinn sem keypti hann hringdi í mig og vantaði drif í hann. Hef ekki heyrt meira af honum. Ég held þetta sé bíllinn sem var beinskiptur en er núna orðinn sjálfskiptur. Þegar ég skoðaði þann bíl var hann í Hafnarfirðinum, og frekar illa sprautaður.
Svo er líka til vel tjónaður blár bíll (klesstur að framan, ég skoðaði hann á Álfhólsveginum fyrir 1-2 árum). Hann var með 3ja stafa R númer. Hann stóð fyrir utan Dominos á Grensásveginum þegar hann var á götunni. Vantar fastanúmerið á hann í safnið mitt
Síðan er silfraður bíll í kópavoginum, fyrir neðan Nýbýlaveginn. Hann ZX veit meira um hann (sjá postið um bílana mína) Gæti verið OA 211???
Svo er blá sexa sem var lengi á Selfossi, en er núna komin í bæinn. Stóð (stendur) fyrir utan rétt hjá Tækniþjónustu Bifreiða. Hann er nýsprautaður og lítur sæmilega út, en er búið að ryðbæta svipað og þennan brúna.
Samkvæmt bifreiðaskrá fyrir um ári síðan, þá eru þetta bílarnir á götunni:
HK 218 628csi Blár
MA 310 628csi Hvítur Þessi sem er var (er) til sölu 2002-2003.
HI 939 630cs 1979 Blár Held þessi sé í eilífðarklössun á Ólafsfirði
HO 075 633csi 1977 Blár
HH 159 628csi 1981 Brúnn
Svo er ég með gamla útprentun úr bifreiðaskrá síðan c.a. 1992, þar eru til viðbótar þessir bílar:
IT 691 630cs 1977
HN 259 635csi 1978
OA 211 628csi 1981
Þess utan er að sjálfsögðu bíllinn minn á götunni
SN 898 635csi 1985
Og svo vínrauði bíllinn sem ég man ekki númerið á. Hann er 635csi 1985 eða 1986 módel.
Þessir tveir síðustu eru að öðrum ólöstuðu heillegustu eintökin á Íslandi.
Ef þið vitið betri deili á einhverjum af þessum bílum, eða um fleiri, endilega skrifið þá inn línu!
Sæmi