Akstursæfing DDA 19. ágúst '11 (Drift/Grip)

Hér skal ræða um allt efni tengt mótorsporti. Ef þú þarft að auglýsa leikdag, æfingu, keppni eða eitthvað slíkt gerðu það þá hér.

Akstursæfing DDA 19. ágúst '11 (Drift/Grip)

Postby rufuz » Wed 17. Aug 2011 19:21

Image

Akstursæfing DDA 19. ágúst '11.

Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!



Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00!

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:
    ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
    ● Gilt ökuskírteini.
    ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
    ● Löglegur hjálmur.
    ● Nagladekk stranglega bönnuð.
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.
Það keyrir enginn án miða!
(nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt)

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr.

Meðlimakortin eru komin. Menn geta nálgast þau á æfingum.
(Ath. þó, það virðist hafa gleymst að gera fyrir þónokkra meðlimi. Því verður reddað vonandi fljótlega.)

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.
Anton

1992 BMW E36 318IS Coupe og...
Image
User avatar
rufuz
Kassabílstjóri
 
Posts: 204
Joined: Sun 16. Jan 2005 02:25
Location: Einhversstaðar á milli himnaríkis og helvítis

Re: Akstursæfing DDA 19. ágúst '11 (Drift/Grip)

Postby eiddz » Thu 08. Sep 2011 14:32

Hvenær er næsta æfing? :D
Kveðja, Eiður
8665409

BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87

Image
eiddz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 956
Joined: Wed 07. Jun 2006 01:11

Re: Akstursæfing DDA 19. ágúst '11 (Drift/Grip)

Postby rufuz » Sat 10. Sep 2011 14:54

Það verður pottþétt æfing í næstu viku. Annaðhvort á föstudaginn frá 18 til 21 eða á sunnudaginn. Kemur í ljós í næstu viku.

EDIT. Breytt plön, það verður æfing á morgun, sunnudag. Er að græja auglýsingu.
Anton

1992 BMW E36 318IS Coupe og...
Image
User avatar
rufuz
Kassabílstjóri
 
Posts: 204
Joined: Sun 16. Jan 2005 02:25
Location: Einhversstaðar á milli himnaríkis og helvítis


Return to Mótorsport

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests