geirisk8 wrote:
íbbi_ wrote:
bíllinn er glæsilegur, en vá maður þvílík tilviljun, þetta er tekið á bílastæðinu fyrir utan "æskuheimili" mitt í "stæðinu mínu" bjó þarna frá 89-2002
Haha snilld! Ég bý í íbúðinni á efri hæðinni. Sem stendur er ég að vinna í viðgerðum til að koma öllu í toppstand. Ég er að fara að láta
skipta um sjálfskiptivökva eftir nokkra daga. Svo fer ég líklega í að kaupa nýja loftsíu og fleira.
Hvar ætlarðu að láta gera það? Myndi fara varlega í að láta einhvern sem kann ekki á BMW gera þetta. Þegar ég var nýgræðingur í sjálfskiptingum hjá BMW fór ég með minn 540 á smurstöð hérna í Keflavík og lét skipta um vökva og síu.
Skiptingin varð alveg hræðileg eftir það og varð ekki betri fyrr en eftir 64þús kall í kostnað frá B&L. Þá var sett röng olía og notuð röng aðferð. B&L þurfti að flusha skiptinguna 3 eða 4 sinnum til að ná allri röngu olíunni úr og í hvert skipti setja nýja olíu á skiptinguna.
Bara smá heads up ef þú varst ekki búinn að hugsa út í þetta
