Lindemann wrote:
Áður en menn missa sig alveg hérna, þá þurfa nokkur atriði að vera á hreinu!
- Það geta alltaf komið upp einhverjar óviðráðanlegar aðstæður við allt keppnishald, s.s. veður eða ef olía fer í braut. Olía í braut er alltaf stórmál hvort sem brautin er kvartmílubraut eða hringakstursbraut!
- Bíllinn sem missti niður olíu var þýskur, en það kemur málinu samt sem áður ekkert við. Svona slys er ekki hægt að koma algjörlega í veg fyrir, aldrei. Tiltekinn bíll lak engri olíu við keppnisskoðun.
- Í gegnum tíðina hefur það aldrei verið þannig að keppendur(í kvartmílu) hafi fengið endurgreitt ef það þarf að hætta keppni vegna svona aðstæðna, eins ef það fer að rigna. Ég er ekkert að segja hvernig þetta á að vera, bara hvernig þetta hefur verið. Yfirleitt hefur þá verið reynt frekar að klára keppnina seinna.
- Það var reynt að keyra Auto-X með þessu breytta fyrirkomulagi því það var það skásta sem hægt var að gera í þessum aðstæðum, Það var ekki hægt að keyra Kvartmílu neitt meira eftir þetta svo ég skil ekki hvernig þetta kemur því við hvort menn hafi áhuga á amerískum v8 eða ekki. Ég var samt ekki að stjórna neinu þarna heldur bara starfsmaður á keppninni og kom hvergi nálægt neinum ákvörðunum þessu tengdu. En það er betra að það komi fram fleiri hliðar á málinu.
-við vorum fram á kvöld að hreinsa brautina, það tekur töluverðan tíma að hreinsa upp [b]1m breiðan og 400m langan olíuúða![/b]
Ok.. ekki skot á þig.. en hvaða hálfviti lét sér detta í hug að senda bíla í brautina til að keyra hana í sikk sakki með 400 metra, 1 meters breiðan olíuúða á henni????
Þessi keppni hefði aldrei átt að vera haldin á brautinni samkvæmt því sem þú og aðrir eru að segja og það hefði að sjálfsögðu átt að endurgreiða keppendum sín gjöld eins og vaninn er ef keppni er ekki byrjuð og er aflýst.
kv.
Valbjörn