Í sambandi við ljós þá eru US ljósin náttúrulega ekki alveg að gera sig. Orginal Euro projector look þ.e. svona ZKV eða hvað þau heita væru hugsanlega málið í því sambandi.
AA geta alveg verið þolanleg t.d. svört DEPO en mér finnst samt orginal Euro projector eitthvað flottara.
Finnst þeir venjulega flottari spoilerslausir en þessi ber sinn nokkuð vel.
Held að aðal focusinn ætti að vera á að koma honum í gourmé ástand. Laga sætið og svona.
Lækka kannski smá sbr. Svezel (Hann notaði Tein gorma minnir mig).
Setja svo einhverjar OEM+ felgur undir. T.d. eitthvað frá BBS eða sambærilegt.
En annars bara að njóta þessa líka geðveika ökutækis





