Þetta varð útkoman og hefur verið samþykkt af stjórn driftdeildarinnar.
Dæmt svæði
Svæðin munu innihalda 3-5 beygjur í hvert sinn. Einungis verður keyrt eitt svæði keppni.
Svæðin eru ákveðin af dómurum hverrar keppni fyrir sig.
Svæðin verða ákveðin fyrir hverja keppni og gefin út kvöldið fyrir keppni.
Það verða 3 dómarar í keppni.
Æfing
Þar sem lega brautarinnar verður ekki gefin fyrr út en daginn fyrir keppni, hafa allir keppendur sama tækifæri á að æfa sig fyrir keppnina.
Keppendur geta beðið dómara um að fylgjast með sér á æfingu og gefið sér ábendingar um línu og hvað betur mætti fara. Þessi möguleiki er aðeins til boða á æfingum.
Qualifying / undankeppni
Keppandi fær eina upphitunar ferð og svo verður dæmdar næstu 2 ferðir . Samanlögð stig dómara úr betri ferðinni verður deilt í þrennt og mun sú útkoma ákvarða við hvern verður keppt í keppninni til að byrja með.
Stigagjöf í undankeppni
Gefin verða 0-10 stig fyrir framistöðu í eftirtöldu:
1. Hraði
Hraði sem keppendur halda:
Inn í beygjuna
Í gegnum beygjuna
Í gegnum dæmt svæði
Reykur
2. Línu í gegnum brautina.
Dómarar ákveða „rétta línu og hröðustu“ í gegnum svæðið. Keppendur fá hæstu stig fyrir skera innsta horn beygjunar og halda sem mestum hraða í gegn um svæðið.
3. Gráða
Gráða ökutækis á að vera sem mest á hlið á miða við aksturlínu svæðisins , ásamt hæfni keppanda til að viðhalda gráðunni sem lengst.
Áhersla verður lögð á hæfni keppandans til að:
Vera sem sneggstur að setja sem mestu gráðu þegar lagt er á stað í beygju, sem lengst frá beygju og mögulegt er.
Tengja saman beygjur með stöðugu hliðarskriði ökutækis.
Halda víðri gráðu ökutækis í sem lengstan tíma.
Stjórnun ökutækis með „full opp“
Keppnin
Keppnin sjálf er útsláttarkeppni þar sem tveir keppendur berjast á móti hvor öðrum.Tveir keppendur verða í brautinn á sama tíma á eftir hvor öðrum. Þó ekki eins og í twin drifting heldur verður stílað inn á að seinni keppnandinn í brautinni sé að byrja svæðið þegar fyrri er nýbúinn.
Það verður farið upphitunarhringur í gegnum svæðið og svo hefst keppnin milli þessa tveggja keppanda. Farnar verða tvær umferðir og skiptast keppendur á að vera á undan.
Ef keppendur er jafnir að mati dómara eftir tvær umferðir verður farin þriðja til að skera úr hvor vann. Vinna þarf tvær umferðir til að komast áfram.
Keppendur hafa 60 sek til að koma sér í rásmark frá því að þeir eru kallaðir upp.
Hér notast dómarar við þær hugmyndir sem dæmt er eftir í undankeppni en eru þó ekki með dómarablöð að skrifa niður heldur dæma einungis um hvor var betri að þeirra mati.
Keppandi nýtur vafans ef dómarar eru ekki vissir og þá er sú umferð dæmd jafntefli og farin er önnur umferð.
Keppnisdagurinn
Dagurinn hefst kl 9:00 með æfingum til kl 12:00, frjáls mæting á æfingar en keppndur verða vera mættir í síðasta lagi kl 12:00. Ef keppandi mætir eftir kl 12:00 þá er hann dottinn úr keppni.
KL 12:00-13:00 er Hádegishlé
Kl 13:00 Byrjar undankeppni
Kl 14:00 Hefst keppni ef að undankeppni er lokið
5 mín reglan
Gildir í gegnum keppnina.
Ef keppandi sprengir dekk eða eitthvað annað kemur fyrir, hefur keppandi 5 mínútur til að laga vandamálið og mæta klár í slaginn. Umferðin telst töpuð ef keppandi nær ekki að mæta í rásmark innan þessa tíma.
Skráning
Síðasti frestur til að skrá sig er kl 20:00 kvöldið fyrir keppni.
Skráning fer fram á drift.is
Dómarar hafa seinasta orðið um úrslit.
Mat dómara er hlutlægt og keppendur eru því beðnir um að virða úrslit dómara jafnvel þó þeir séu ósammála.
Útskýring á útsláttarkeppni er í meðfylgjandi hefti með mismunandi uppsetningu á “trjám” eftir fjölda keppanda.
Smella hér
Vonandi að sem flestir taki þátt í keppnum í sumar ef ekki þá að mæta og horfa á
Fyrir hönd keppnisnefndarinnar
Einar Sigurðsson






