Þetta er það sem stendur í lögum og reglum um svona.. eða allavega það eina sem ég fann:
http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/044-2003 wrote:7gr.
Við sölu skulu eftirfarandi gögn liggja fyrir:
a. Vottorð úr ökutækjaskrá sem sýnir ótvírætt að seljandi sé eigandi þess ökutækis sem selt er eða
hafi umboð til sölunnar.
b. Skrá yfir fyrri eigendur með sannanlegum hætti.
c. Upplýsingar um hugsanlegan tjónaferil ökutækisins með sannanlegum hætti. Þar á meðal ferilskrá um
framkvæmd viðgerðar á ökutæki sem lent hefur í tjóni.
d. Hvort veðbönd hvíli á ökutækinu.
e. Skriflegar upplýsingar seljanda skv. 1. mgr. 4. gr. sem fylgja skulu afsali.
Þar sem þessi bíll er skráður viðgerður tjónabíll þá þarf samkvæmt lögum að gefa upp öll gögn varðandi
þetta tjón og hvernig það var gert við það, það þarf ekki að auglýsa það heldur þarf að afhenda þetta við
sölu.
En þá stangast þetta á við önnur lög:
http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/822-2004 wrote:
4. gr.
ÁLETRANIR OG MERKI
04.00 Almenn ákvæði.
(1) Á ökutæki skal á viðeigandi stað vera nægilega stór flötur fyrir þá gerð skráningarmerkis sem ætluð
er á ökutækið. Flöturinn skal vera sem næst hornréttur á lengdarás ökutækisins og þannig að tölur og
stafir á skráningarmerki standi nokkurn veginn lóðrétt. Neðri hluti flatarins skal að jafnaði vera 0,3 m
til 1,2 m yfir akbraut.
(2) Á hverju skráningarskyldu ökutæki skal vera tákn eða vörumerki framleiðanda ásamt varanlega skráðu
verksmiðjunúmeri.
Óheimilt er að breyta tákni framleiðanda, vörumerki eða verksmiðjunúmeri.
Þetta er einn partur, síðan er annar:
http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/key2/822-2004 wrote:2. gr.
MEGINREGLUR
02.00 Almenn ákvæði.
(1) Skilgreiningar.
Skoðunarstofa: Faggilt skoðunarstofa sem annast skoðun ökutækja.
Umferðarstofa: Skráningarstofa ökutækja.
Tjónabifreið: Bifreið sem orðið hefur fyrir tjóni sem getur haft áhrif á aksturseiginleika hennar og
akstursöryggi.
(2) Ökutæki skal svo gert og því haldið í þannig ástandi að nota megi án þess að af því leiði hættu eða
óþægindi fyrir aðra eða skemmd á vegi.
(3) Ökutæki skal þannig hannað og gert að það þoli það álag sem eðlilegt má teljast að það verði fyrir og
sé nothæft án þess að stofna umferð í hættu eða valda óþægindum. Ökutæki skal þannig haldið við að það
þoli þá notkun sem það er skráð fyrir.
(4) Stjórntækjum og merkjatækjum skal þannig fyrir komið að auðvelt sé að nota þau. Skal ökumaður geta
beitt þeim án þess að færa sig til í sæti eða beina athygli frá akbraut.
(5) Ef fyrirhugað er að breyta ökutæki frá því sem það var við gerðarviðurkenningu eða
skráningarviðurkenningu skal skráður eigandi ökutækisins sækja um það til Umferðarstofu og fá
fyrirhugaðar breytingar samþykktar.
(6) Ef fyrirhugað er að gera við eða endurbæta ökutæki með þeim afleiðingum að verksmiðjunúmer
skemmist eða verði fjarlægt skal skráður eigandi ökutækisins sækja um það til Umferðarstofu og fá
fyrirhugaða viðgerð eða endurbætur samþykktar.
(7) Ökutæki sem flutt er á milli ökutækisflokka skal uppfylla öll ákvæði reglugerðar þessarar sem varða
nýjan ökutækisflokk.
(8) Gildistaka: Ákvæði liðar 02.00 gilda einnig um ökutæki sem skráð er fyrir gildistöku
reglugerðarinnar.
02.10 Bifreið.
(1) Áður en tjónabifreið er tekin í notkun skal gert þannig við hana að aksturseiginleikar hennar og
akstursöryggi sé ekki lakara en á sambærilegri bifreið óskemmdri.
Eins og ég skil þetta þá er þessi viðgerð ekki lögleg, sama hversu vel hún var gerð, nema hún hafi verið framkvæmd í samráði við Umferðarstofu.
Mín skoðun á hvort þetta er M5 eða ekki; mér finnst ekkert að því að kalla þetta M5, satt að segja ef að ég ætti þennan bíl myndi ég kalla hann M5 frekar en "528 með gjörsamlega öllu úr M5". Hvað er það sem gerir M5 M5? Skelin ein og sér? Nei. Vélin, gírkassinn, fjöðrunin og drifið er svona það helsta. Ef að það myndi fara vélin í M5 og einhver vitleysingur myndi swappa úr 528i í M5 þá væru það nú ansi margir sem myndu ekki taka það í mál að kalla þetta M5 lengur, þrátt fyrir að bíllinn hafi alltaf verið það og skelin væri M5 skel frá verksmiðju.
En að notast við skráninguna af ónýtum M5 finnst mér prívat og persónulega MJÖG shady. Það er eitthvað sem ég hefði ekki gert...