Ég keyrði um á Blizzak dekkjum á Golfnum mínum í einn og hálfan vetur og var mjög sáttur. Þau eyðast soldið á þurru og heitu malbiki enda mjúkt gúmmí, ég passaði mig bara að setja þau undir seint og taka undan snemma.
Núna er ég á 16" Goodyear Ultragrip dekkjum, negldum að aftan en ónegldum að framan, best of both worlds
C32 AMG Carlsson Toyota Land Cruiser 80 Subaru Impreza GX - beater!
Er á ónegldum vetrardekkjum. Ætla þó að fá mér betri vetrardekk næst því ég er ekki alveg nógu sáttur við þessi. Minnir að þau heiti "Power King Plus" eða eitthvað ámóta.
Get því miður ekki mælt neitt sérstaklega með þeim en þau eru samt alls ekki neitt hræðileg og sæmileg í snjó og hálku og miklu betri en engin (sumardekk semsagt ). Mættu vera betri í bleytu og á þurru.
Þessi stefna þó á að duga þennan og jafnvel næsta vetur...
Ingimar E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
En hvernig er þetta að virka???? Ég náði aldrei að keyra þetta í einhverri ófærð!
Annars er ég á Dunlop SP Winter Sport á mínum 740i, kemst allt innanbæjar. Er með sóluð Norðdekk undir 518i bílnum. Þau eru sóluð, segir það ekki allt sem þarf að segja
Ég er með 205/65R15 goodyear nelgd dekk með svona v-munstri og er mjög sáttur minn drýfur allavega allt þá hann sé red að vísu líka læstur. En ef ég væri að kaupa ný dekk myndi ég ekki kaupa nagla dekk og skemma vegin en ég fékk þessi dekk nánast ónotuð á 30 k sem er vel sloppið fyrir good year