Nú fer að styttast í að maður nái í númerin
En svona fram að því er verið að dunda í hinu og þessu. Síðustu dagar hafa farið í að taka spoilerkittið af partabílnum og þrífa það upp og skoða rækilega.
Hér er fram og aftursvuntan

Svo er þessir litlu listar hér restin af því sem gerir complete framsvuntuna

Svo er hér oem framstuðarinn, þarf að láta laga eina litla sprungu í honum eftir fyrsta og eina veturinn sem ég ók bílnum

Um leið og ég læt laga stuðarann ætla ég að láta fylla uppí nokkur skrúfugöt sem einhver óvandaður fyrri eigandi hefur borað til festa kittið á bílinn sem það var á. Svona kitt á að vera límt á og er það í upphafi frá AC Schnitzer.
Það litla sem manni er farið að hlakka til.....
