bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 15:48

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 02:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Mig langar að fræðast um fyrningu á líkamsárás.

Er hægt að leita réttar síns ef viðkomandi brotaþoli var undir lögaldri en er nú um tvítugt?

Meira en tíu ár eru liðin frá árásinni. Er þetta fyrnt?

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 02:39 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Posts: 559
Location: Halfpriceland
er það ekki bara þessi 3 vikna regla?

ég held það, ekki nema um heimilisofbeldi eða nauðgun se að ræða


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 02:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
E55FFFan wrote:
er það ekki bara þessi 3 vikna regla?

ég held það, ekki nema um heimilisofbeldi eða nauðgun se að ræða


Um hvað ertu að tala? 3 vikna regla??

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 03:16 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Posts: 559
Location: Halfpriceland
Kristjan wrote:
E55FFFan wrote:
er það ekki bara þessi 3 vikna regla?

ég held það, ekki nema um heimilisofbeldi eða nauðgun se að ræða


Um hvað ertu að tala? 3 vikna regla??



vow vow, las ekki nógu vel


ég var að tala um að maður hefur 3 vikur til þess að kæra fyrir líkamsárás.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 08:15 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Posts: 865
Location: Höfuðstaðurinn
Kíktu í kafla XI almennra hegningalaga. Þar er fjallað um fyrningu sakar, brottfall viðurlaga og uppreist æru.

IX. kafli. [Fyrning sakar, brottfall viðurlaga og uppreist æru.]1)
1)L. 20/1981, 3. gr.
80. gr. [Sakir fyrnast samkvæmt ákvæðum 81. og 82. gr. Á það einnig við um brot samkvæmt sérrefsilögum, nema þar sé annan veg mælt.]1)
1)L. 20/1981, 4. gr.
81. gr. [Sök fyrnist á þeim tíma, er hér segir:
1. Á 2 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 1 árs fangelsi eða refsing sú, sem til er unnið, fer ekki fram úr sektum.
2. Á 5 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 4 ára fangelsi.
3. Á 10 árum, þegar ekki liggur þyngri refsing við broti en 10 ára fangelsi.
4. [Á 15 árum, þegar þyngsta refsing við broti er meira en 10 ára tímabundið fangelsi.]1)
[Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. fyrnist sök vegna brota samkvæmt ákvæðum 194. gr., 1. mgr. 200. gr. og 1. mgr. 201. gr. ekki þegar brot er framið gagnvart barni undir 18 ára aldri.]2)
[Fyrningarfrestur vegna brota, sem fólgin eru í því að komast undan greiðslu á tollum, sköttum eða öðrum gjöldum til hins opinbera, er aldrei skemmri en 5 ár.]1)
Nú gerist maður sekur um háttsemi, sem varðar við fleiri en eitt refsiákvæði, og skal þá miða fyrningarfrest brotanna við það ákvæði, er geymir þyngst refsimörk.]3)

217. gr. [Hver, sem gerist sekur um líkamsárás, enda sé hún ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 6 mánuðum],1) en fangelsi allt að 1 ári, ef háttsemin er sérstaklega vítaverð.
Málssókn er opinber út af broti samkvæmt 1. mgr., og skal mál eigi höfðað nema almenningshagsmunir krefjist þess.]2)
1)L. 82/1998, 110. gr. 2)L. 20/1981, 10. gr.
218. gr. [Hafi maður með vísvitandi líkamsárás valdið öðrum manni tjóni á líkama eða heilbrigði, og þessar afleiðingar árásarinnar verða taldar honum til sakar vegna ásetnings eða gáleysis, þá varðar það …1) fangelsi allt að 3 árum, eða sektum, ef sérstakar málsbætur eru.
Nú hlýst stórfellt líkams- eða heilsutjón af árás eða brot er sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar, þ. á m. tækja, sem notuð eru, svo og þegar sá, er sætir líkamsárás, hlýtur bana af atlögu, og varðar brot þá fangelsi allt að 16 árum.]2)

_________________
Saxi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: My 2 cents
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 17:07 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Sælir.

Í fyrsta lagi vil ég benda mönnum á að varast að vera að gefa ráð þegar þeir vita etv. ekki fyllilega um hvað þeir eru að ræða.

Stutta svarið er eflaust að málið fyrnist á tveimur árum, ef þetta er minniháttar líkamsárás, skv.217 gr. hgl. Síðan vandast málið og etv. er þetta meiriháttar líkamsárás, skv.218 gr. Þannig er í raun ekkert einfalt svar við þessu. Varðandi það hvort hægt sé að kæra ef gerandi var undir lögaldri er ekki alveg hægt að svara því, þar skiptir máli hvort viðkomandi var orðinn 15 ára, eða ekki, vegna þess að við erum óskahæf undir 15 ára aldri. Ef það er málið er ekkert hægt að gera, það er ekki hægt að bíða eftir að einstaklingur nái 15 ára aldri til að sækja hann til saka, ef hann er ósakhæfur þegar brotið á sér stað gildir það. Svo má líka velta því upp hvort bótaréttur sé til staðar. Það er etv. eitthvað sem þú þarft að ræða um við lögmann.

Kv.
Þórir


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: My 2 cents
PostPosted: Mon 24. Nov 2008 18:01 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Posts: 865
Location: Höfuðstaðurinn
Þórir wrote:
Sælir.

Í fyrsta lagi vil ég benda mönnum á að varast að vera að gefa ráð þegar þeir vita etv. ekki fyllilega um hvað þeir eru að ræða.

Stutta svarið er eflaust að málið fyrnist á tveimur árum, ef þetta er minniháttar líkamsárás, skv.217 gr. hgl. Síðan vandast málið og etv. er þetta meiriháttar líkamsárás, skv.218 gr. Þannig er í raun ekkert einfalt svar við þessu. Varðandi það hvort hægt sé að kæra ef gerandi var undir lögaldri er ekki alveg hægt að svara því, þar skiptir máli hvort viðkomandi var orðinn 15 ára, eða ekki, vegna þess að við erum óskahæf undir 15 ára aldri. Ef það er málið er ekkert hægt að gera, það er ekki hægt að bíða eftir að einstaklingur nái 15 ára aldri til að sækja hann til saka, ef hann er ósakhæfur þegar brotið á sér stað gildir það. Svo má líka velta því upp hvort bótaréttur sé til staðar. Það er etv. eitthvað sem þú þarft að ræða um við lögmann.

Kv.
Þórir


Kristjan wrote:
Mig langar að fræðast um fyrningu á líkamsárás.

Er hægt að leita réttar síns ef viðkomandi brotaþoli var undir lögaldri en er nú um tvítugt?

Meira en tíu ár eru liðin frá árásinni. Er þetta fyrnt?


Þórir athugaðu að Kristján nefnir hvergi geranda í sínum spurningu heldur brotaþola. Aldur hans skiptir ekki máli hvað fyrningu varðar nema ef um er að ræða kynferðisbrot.

Alveg rétt að það er ekki auðvelt að gefa einhlýtt svar við þessari spurningu með þeim upplýsingum sem gefnar eru en það er hægt að glöggva sig á þessu í þessum lagagreinum sem ég nefni.

Kveðja

_________________
Saxi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: My 2 cents
PostPosted: Tue 25. Nov 2008 19:51 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Saxi wrote:
Þórir wrote:
Sælir.

Í fyrsta lagi vil ég benda mönnum á að varast að vera að gefa ráð þegar þeir vita etv. ekki fyllilega um hvað þeir eru að ræða.

Stutta svarið er eflaust að málið fyrnist á tveimur árum, ef þetta er minniháttar líkamsárás, skv.217 gr. hgl. Síðan vandast málið og etv. er þetta meiriháttar líkamsárás, skv.218 gr. Þannig er í raun ekkert einfalt svar við þessu. Varðandi það hvort hægt sé að kæra ef gerandi var undir lögaldri er ekki alveg hægt að svara því, þar skiptir máli hvort viðkomandi var orðinn 15 ára, eða ekki, vegna þess að við erum óskahæf undir 15 ára aldri. Ef það er málið er ekkert hægt að gera, það er ekki hægt að bíða eftir að einstaklingur nái 15 ára aldri til að sækja hann til saka, ef hann er ósakhæfur þegar brotið á sér stað gildir það. Svo má líka velta því upp hvort bótaréttur sé til staðar. Það er etv. eitthvað sem þú þarft að ræða um við lögmann.

Kv.
Þórir


Kristjan wrote:
Mig langar að fræðast um fyrningu á líkamsárás.

Er hægt að leita réttar síns ef viðkomandi brotaþoli var undir lögaldri en er nú um tvítugt?

Meira en tíu ár eru liðin frá árásinni. Er þetta fyrnt?


Þórir athugaðu að Kristján nefnir hvergi geranda í sínum spurningu heldur brotaþola. Aldur hans skiptir ekki máli hvað fyrningu varðar nema ef um er að ræða kynferðisbrot.

Alveg rétt að það er ekki auðvelt að gefa einhlýtt svar við þessari spurningu með þeim upplýsingum sem gefnar eru en það er hægt að glöggva sig á þessu í þessum lagagreinum sem ég nefni.

Kveðja


Laukrétt. Enda svar þitt gott. Alltaf best að lesa greinarnar sjálfar.

Kv
Þórir


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 8 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 119 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group