Úlllala... sumarið bara komið og bíllinn alveg að fara saman aftur.
Það er búið að renna sveifarásinn, ég er kominn með nýja stimpilstöng sem að smell passar, nýju legurnar og heddpakkningin kom í dag(reyndar vitlausar legur en það koma nýjar á miðv. eða fimmt.)
Þannig að já... það má segja að það sé allt að gerast
Einar raðar mótornum saman þegar nýju legurnar koma og svo fer hann ofan í á laugardaginn.
Ég er bjartsýnn og planið mitt er:
Fimmtudagur: mótor saman og allt gert reddí af Einar Óla
Föstudagur: detta í það en ekki of mikið þannig að maður geti ekki unnið á laugardaginn.
Laugardagur: setja mótor ofaní og reyna tengja allt. Detta í það aftur.
Sunnudagur: klára ef það verður eitthvað eftir, annars liggja í þynnku.
Mánudagur-miðvikudagur: Tilkeyrsla
Fimmtudagur: Spóla.
Er þetta ekki gott vikuplan??
