
WARNING - RITGERÐ
Ég hef enga reynslu af UPS og mjög littla af DHL.
Ég pantaði mér samt smá hlut á netinu frá Bretlandi í fyrra, og borgaði extra fyrir að fá það með DHL. Pakkinn þvældist eitthvað til Belgíu og ég fékk hann loksins eftir tvær vikur, þá bankar uppá stelpa á ómerktum bíl í venjulegum fötum og réttir mér pakkann. Ég spurði hvort ég ætti að borga eitthvað, hún segir "held ekki" og ég spyr aftur "ertu viss" og hún segir "já, það er engin rukkun hérna svo það er ekki neitt".
Ég var auðvitað dauðfegin, hafði búist við því að þurfa borga allt að 5000 kr.
Heyrðu, þremur mánuðum seinna þá fæ ég bréf þá DHL sem segir að ég skuldi þeim 3000 og eitthvað krónur og ef ég borga ekki innnan 10 daga frá dagsetningu bréfsins þá færi þetta í innheimtu. Og notabene bréfið hafði verið sent viku eftir stílaða dagsetninu svo ég hafði bara 3 eða 4 daga. (Man ekki nákvæmlega hvað þetta voru margir dagar svoleiðis, en það var liðinn meira en helmingur af frestinum þegar það var sett í póst.
Það var enginn greiðsluseðill eða neitt, bara eitthvað afgreiðslunúmer sem sagði mér ekki neitt, ekki einu sinni hvaða pakki þetta var eða síðan hvenær þetta var. En mig grunaði strax hvað þetta væri.
Ég þurfti að taka mér frí frá vinnu til að geta farið niðureftir og talað við einhverja sem gat staðfest það að þetta væri tollurinn af pakkanum sem ég hafði fengið fyrir þrem mánuðum síðan. Ég bara borgaði þetta, til að vera laus við þetta, en sagði einnig að ég væri ekki ánægður með að þetta hefði verið 2 vikur á leiðinni, hvernig stelpað sem kom með pakkann sagði að ég hefði ekki þurft að borga neitt og svo fá bréfið og það væri sent með pósti viku eftir stílaða dagsetningu og með svona eiginlegri hótun, því maður kærir sig ekki neitt um það að fá rukkun frá Intrum hversu lág sem upphæðin getur verið.
Og eina sem hún sagði var að hún biði mig afsökunar í sambandi við bréfið og það yrði ekkert meira af því. En sagði að ég hefði átt að hafa samband við DHL úti í Bretlandi út af því hversu lengi pakkinn var á leiðinni, og ég var alveg, bíddu er þetta ekki sama fyrirtækið.
Svo var ekkert meira úr því en hvað mér fannst þetta ó-professional.