Ég fór til Boston í vor og við eina verslun í miðbænum var sér bílastæði fyrir kúnna. Ég labbaði alltaf framhjá þessari verslun því þar voru oft mjög flottir Bimmar og aðrir bílar. En einn af þeim sem var með mér í hóp lét taka mynd af sér þegar hann stakk lykli ínní hurðarsílsinn á nýlegum Ferrari (þeir vissu ekki hvaða tegund og ég var ekki með) eins og hann væri eigandinn á leið í bílinn sinn. Allir tóku þessu bara vel enda var ekki um hryðjuverk að ræða.