Að gefnu tilefni er mælst til að þú lesir þetta áður en þú setur inn auglýsingu hérna á spjallið í fyrsta sinn.Við viljum aðeins hafa eina auglýsingu á hverjum tíma fyrir sama bíl hjá sama einstaklingi. Ef þú setur inn aðra auglýsingu verður hún fjarlægð og það ekki vel séð að fólk sé að stunda slíkt. Á þessu spjallborði eyðum við að jafnaði ekki ekki út því sem aðrir hafa sett inn. Ef þú gætir eytt þínum "gömlu" auglýsingum, þá værir þú í leiðinni að eyða öllu því sem aðrir setja inn í auglýsingarnar þínar. Oft koma þar fram hlutir sem eiga fyllilega við það sem er verið að selja og varpa ljósi á hitt og þetta sem kemur tilvonandi kaupanda vel að vita. Ef eitthvað er sett inn í þræði sem ástæða er til að stroka út, vegna ummæla sem eru ekki viðeigandi, þá taka stjórnendur það út eftir ábendingar eða af sjálfsdáðum.
Það er mjög einfalt mál að nota sömu auglýsinguna fyrir sama hlutinn þangað til hluturinn selst. Þegar hann er seldur, þá setur þú einfaldlega "selt" í fyrirsögnina (þú getur alltaf breytt þínum eigin póstum) og eða líka aftast í þráðinn. Þá vita allir að hluturinn er ekki lengur til sölu. Ef þú vilt svo fá auglýsinguna til að færast fremst, seturðu einfaldlega eitthvað komment í þráðinn sjálfur og þá endurnýjast auglýsingin fremst til að aðrir sjá hana.
Mælst er til þess að fólk vandi sig við gerð auglýsinganna, það minnkar óþarfa leiðinda umræðu í söludálkinum og eykur líkur á að auglýsingin hitti í mark.
Þú getur alltaf fært auglýsinguna á topp "til sölu" dálksins með að setja innlegg í viðkomandi þráð. Einnig getur þú breytt upphaflega innlegginu til að það endurspegli stöðu mála á hverjum tíma. Notaðu það í stað þess að búa til nýja auglýsingu.
Til að hjálpa þér í gerð auglýsingar, þá er ágætt að hafa eftifarandi punkta í huga:
1) Nafn þráðarinsReyndu að láta nafn þráðarins (
e. subject) vera lýsandi og segja nóg til þess að fólk viti hvort það hafi áhuga á efni hans eða ekki.
2) Upplýsingar um vöruPassaðu að láta nægar upplýsingar fylgja með bílnum, því að spurningar eins og "
Hvað er svo verðmiðinn?" og "
Áttu myndir?" eru snöggar að koma ef þeim hefur ekki þegar verið svarað. Hérna neðst í skjalinu er listi yfir þau atriði sem BMWKraftakarlar vilja
gjarnan vita svör við.
3) Hvernig næ ég í þig?Vertu viss um að það komi skýrt fram hvernig er hægt að hafa samband við þig. Oft eru það gestir sem setja inn auglýsingar, og þá er betra að láta GSM númerið sitt fylgja.
4) MyndirEf þú átt myndir af bílnum, láttu þær endilega fylgja. Til er þjónusta á vefnum sem getur hýst fyrir þig myndirnar og hýsa þeir glaðir fyrir okkur BMWKrafts menn án endurgjalds.
Meira um þetta hérna.
Listi yfir þau atriði sem ættu að fylgja upplýsingar um* Tegund og gerð
* Árgerð
* Akstur
* Litur
* SSK/BSK
* Útbúnaðarlýsing (felgur, sóllúga, áklæði o.s.frv.)
* Ástandslýsing (tjónabíll, skoðunarástand, gallar og slíkt)
* Skipti/engin skipti
* Áhvílandi
* VERÐ!
Vonandi nýtist þetta sem flestum við að pósta
góðum auglýsingum.