Eignaðist þennan fína M5 í síðustu viku og við það tækifæri ákvað ég að skrá mig í klúbbinn loksins.
Hef fylgst með þessu spjallborði í dálítinn tíma án þess að vera virkur á spjallinu.
Bílinn kannast líklega flestir við, '99 E39 M5 Silverstone Metallic.
Verslaði bílinn af Einari (einarss) og þakka honum fyrir
Ég er alveg í skýjunum, svakalegur kraftur og gaman að keyra þetta tæki. Hef ekki haft svona gaman af því að keyra frá því að ég fékk prófið.
Búinn að fara 4 ferðir á bensínstöðina á þeim 6 dögum sem ég hef átt hann til að fylla tankinn
Bíllinn er í mjög góðu standi og liturinn á honum finnst mér frábær, ég hef ekki planað neinar breytingar ennþá.
Ég fæ nokkrar myndir lánaðar frá Einari til að byrja með þar til ég gef mér tíma til að taka myndir sjálfur.






