Jæja mikið búið að ganga á í gær og í dag.
Vorum að klára í gærkvöldi (laugardag) þegar heyrðist brambolt úr húddinu
þegar við vorum að hægja á okkur eftir 4. gírs pull út í hrauni.
Fórum út í kant og opnuðum húddið.... "LORT" eins og sá danski sagði
Superchargerreimin var í döðlum ásamt viftu og vökvastýrisreimum.
Það sem verra var að trissuhjólin sem halda strekkingu á viftureiminni
lágu laus og hafði festingin brotnað af framstykkinu á mótornum.
Nú var hringt í neyðarlínuna (Dóra Porsche) sem kom snögglega með
Nonna Vette í dísil E60 sem dró okkur niður í aðstöðu hjá Dóra.
Bílnum var hent upp á lyftu og byrjað að rífa til að sjá skaðann:
- trissuhjólafesting brotin af framstykki mótorsins
- trissuhjólin ónýt
- viftuspaði brotinn
- hjólið á vökvastýrisdælunni ónýtt
- aðal hjólið fyrir viftureimina ónýtt
- allar reimar í döðlum
Fyrsta plan var að skipta út framstykkinu og fá það úr bláa bílnum hjá
Nonna Vette. Það hefði tekið hrikalegan tíma og þýtt að það þyrfti að
rífa allt ofan og framan af mótornum bæði hjá mér og Nonna. Hefði tekið
ca. 10-12 tíma pr. mótor.
Þannig að Hr. X fann aðra leið til að gera þetta. Það plan gekk út á að
renna kón með þræddu gati til að setja bakvið framstykkið.
Svo að setja lengri bolta í gegn til að pressa brotna hlutanum að framstykkinu.
Planið var sett í action strax - náð í Ragga CNC gúrú hjá Iðnskólanum í
Hafnarfirði. Hann var dreginn úr kosningapartíi til að líta á málið.
Hann smíðaði síðan stykkið í morgun ásamt því að renna skinnu sem
við þurftum.
Í dag SUNNUDAG var líka unnið í því að redda öllum þeim hlutum sem vantaði
og nú kom sér vel að þekkja góða menn
Vökvastýrishjól fékkst hjá Tomma Camaro.
Viftuspaðinn, trissuhjólin og hjólið fyrir viftureimina fékkst hjá Nonna Vette
Viftureim og vökvastýrisreim hjá neyðarþjónustu BogL
Blásarareim hjá N1 og Öskju (fékk alls 4 stykki

)
Bolti til að pressa brotið saman í BYKO
Svo var vaðið í að skella þessu í og bíllinn var kominn í gang kl. 19 í dag.
Fórum strax út í hraun til að sjá hvort þetta myndi halda og það gerði
það

Tókum nokkur góð GTech rönn og Hr. X gerði nokkrar breytingar á
forrituninni í bílnum sem virkuðu mjög vel. Gerðum nokkrar breytingar -
tók þokuljósacoverin af þannig að blástur fer beint á loftsíur, tók gúmmí-
lista af aftast í vélarrými þannig að loft flæðir betur afturúr vélarsal. Fórum síðan
aðeins upp á Rallíkrossbraut og leyfðum bílnum að kólna aðeins
eftir öll þessi rönn.
Svo var tekið rönn út á vegi og dósin spýttist áfram eins og fjandinn sjálfur:
- 630 hp
- 12.4 kvartmílan
- 4.3X 0-100
Mælirinn sýndi 48X hestöfl í hjól sem margfaldað er með 1.3 til að fá
crank gildi.
Er verulega sáttur við hvernig bíllinn er að virka - ótrúlegt power og
það er smooth, ekkert hikst í powerbandinu.
Fórum síðan að klára að stilla inn Racelogic græjuna því að við uppgötvuðum
að við vorum ekki með hana 100% rétt stillta. Eftir þetta er hún MIKLU
betri - algjör snilld.
Jæja - er að fara að leggja mig - skutla Hr. X út á völl eftir 3 tíma....
Vil nota tækifærið og þakka öllum sem hjálpuðu!!!:
- Dóri & Fannar
- Nonni Vette
- Tommi Camaro
- Sæmi Boom
- Danni hjá N1
- Bjarki, Ingi ofl. hjá BogL
- Jói hjá Öskju
- Hr. Alpina
- Raggi CNC gúrú
Er örugglega að gleyma einhverjum - er alveg orðinn glær í hausnum

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...